Körfubolti

Enginn í bann en fullt af sektum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Upp úr sauð í leik Grindavíkur og Njarðvíkur á fimmtudaginn.
Upp úr sauð í leik Grindavíkur og Njarðvíkur á fimmtudaginn. vísir/guðmundur

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur komist að niðurstöðu í málum eftir uppákomuna í fyrsta leik Grindavíkur og Njarðvíkur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Enginn leikmaður var úrskurðaður í bann en félögin þurfa að greiða vænar sektir.

Njarðvíkingurinn Dominykas Milka, sem var rekinn út úr húsi undir lok leiksins, fékk fjörutíu þúsund króna sekt og Grindvíkingurinn Jordan Semple fékk áttatíu þúsund króna sekt.

Grindavík fékk 250 þúsund króna vegna framkomu áhorfenda sem fóru inn á völlinn og tóku þátt í stimpingum við leikmenn. Það var þó talið Grindvíkingum til málsbóta að gæslumenn brugðust hratt við aðstæðum og leystu vel úr þeim.

DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, fékk fimmtíu þúsund króna vegna átta tæknivillna sem hann hefur fengið á tímabilinu. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, fékk þrjátíu þúsund króna sekt þar sem hann hefur fengið sex tæknivillur í vetur.

Milka fékk tuttugu þúsund króna sekt vegna fjögurra tæknivillna á tímabilinu og þá fékk Grindavík þrjátíu þúsund króna sekt sem liðið fékk í leiknum á fimmtudaginn.

Annar leikur liðanna fer fram í IceMar-höllinni í Njarðvík á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×