Körfubolti

Stinning­skaldi safnaði fyrir sektinni og borgaði hana

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stinningskaldi í stúkunni í HS Orku-höllinni í Grindavík.
Stinningskaldi í stúkunni í HS Orku-höllinni í Grindavík. vísir/guðmundur

Stuðningsmannasveit Grindavíkur, Stinningskaldi, hefur safnað fyrir sektinni sem félagið fékk vegna ólátanna í leiknum gegn Njarðvík í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta.

Upp úr sauð undir lok leiks Grindavíkur og Njarðvíkur í HS Orku-höllinni á fimmtudaginn. Stimpingar milli leikmanna undu upp á sig þar sem gæslumenn og lögreglufólk þurfti að blanda sér í leikinn eftir að stuðningsmenn fóru inn á völlinn til að taka þátt í átökunum.

Í hádeginu deildi aga- og úrskurðarnefnd KKÍ út refsingum vegna ólátanna eftir leikinn. Enginn leikmaður var úrskurðaður í bann. Njarðvík fékk samtals áttatíu þúsund króna sekt en sekt Grindavíkur nam 440 þúsund krónum. Þar af fékk Grindavík 250 þúsund króna sekt vegna framkomu áhorfenda.

Grindavík fordæmdi hegðun stuðningsmanna liðsins og nú hefur Stinningskaldi fordæmt eigin hegðun. Stuðningsmannasveitin bað samfélagið Grindavík, sjálfboðaliða og Njarðvíkinga afsökunar á framkomu sinni.

Þá tók Stinningskaldi sig til og safnaði 250 þúsund krónum fyrir sektinni sem félagið fékk vegna hegðunar áhorfenda í leiknum á fimmtudaginn. Stinningskaldi mun greiða sektina sjálfviljugir og forða Grindavík frá því.

Stinningskaldi óskaði jafnframt eftir því að KKÍ myndi nýta andvirði sektarinnar til að greiða niður ferðir unglingalandsliða Íslands erlendis.

Yfirlýsing Stinningskalda

Yfirlýsing Stinningskalda

Stinningskaldi vill fordæma hegðun sína sem kom upp undir lok 4. leikhluta í síðasta leik Grindavíkur gegn Njarðvík. Nokkrir stuðningsmenn lifðu sig aðeins of mikið inn í leikinn og brugðust með því að hoppa yfir grindverk og auglýsingaskilti og þar með blanda sér í leikinn sem voru mistök sem við lærum af.

Við viljum biðja samfélagið Grindavík afsökunar, sjálfboðaliða og vini okkar í Njarðvík sem klúbburinn hefur átt í góðu samstarfi við meðal annars í fótboltanum og körfu.

Stinningskaldi hefur safnað upp fyrir sekt sinni 250 þúsund krónum og munum við því greiða hana sjálfviljugir og sleppa því að láta þá sekt falla á klúbbinn.

Við óskum því að KKÍ eyði þessum pening í okkar unglingalandslið til að greiða niður kostnað fyrir ferðir þeirra erlendis.

Við vonum að þessi máli sé hér með lokið

Áfram Grindavík og áfram körfubolti💛💙

Njarðvík og Grindavík mætast öðru sinni í IceMar-höllinni í Njarðvík á mánudagskvöldið. Njarðvíkingar leiða einvígið, 1-0, eftir sigur í fyrsta leiknum, 87-97.


Tengdar fréttir

Grindvíkingar harma og fordæma hegðunina

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna uppákomu í leik liðsins við Njarðvík á heimavelli fyrrnefnda liðsins í Bónus deild karla í körfubolta í gær.

Fimm kærur á borði aganefndar: „Lítum þetta alvarlegum augum“

„Við viljum alls ekki sjá þetta. Ég og við öll í kringum sambandið lítum þetta alvarlegum augum,“ segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, um þá uppákomu sem átti sér stað í leik Grindavíkur og Njarðvíkur í Bónus deild karla í körfubolta í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×