Wirtz segir Van Dijk hafa haft rangt fyrir sér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2026 11:33 Florian Wirtz var ekki sammála fyrirliða sínum Virgil van Dijk sem lét athyglisverð orð falla eftir tapið á móti Manchester City í enska bikarnum. Getty/Francesco Scaccianoce Florian Wirtz hefur hafnað fullyrðingum fyrirliða síns hjá Liverpool, Virgil van Dijk, um að leikmenn Liverpool hafi gefist upp í 4-0 tapi í ensku bikarkeppninni gegn Manchester City á laugardaginn.
Liverpool mætir sigurvegurum Meistaradeildarinnar frá síðasta tímabili í París í kvöld aðeins fjórum dögum eftir niðurlæginguna í ensku bikarkeppninni á Etihad-leikvanginum, leik þar sem þúsundir stuðningsmanna Liverpool yfirgáfu völlinn snemma vegna afleitrar frammistöðu leikmanna Arne Slot. Eftir tapið sagði varnarmaðurinn Van Dijk: „Maður á ekki að gefast upp og það er kannski það sem gerðist á ákveðnum tímapunkti.“ Miðjumaðurinn Wirtz ræddi við fjölmiðla á blaðamannafundi í París fyrir leikinn og þar sagði hann að leikmennirnir hefðu haldið áfram að skapa færi gegn City, þrátt fyrir stöðuna. Vissi ekki að Van Dijk hefði sagt þetta „Ég vissi ekki að Van Dijk hefði sagt þetta, en ég held að ég væri ekki beint sammála því við reyndum samt að skapa færi til að snúa leiknum við,“ sagði Wirtz við fréttamenn. „Auðvitað, þegar líður á leikinn og þú ert 3-0 undir á 80. mínútu eða þar um bil, er andlega erfitt að halda áfram og áfram og áfram og við reyndum bara að gera okkar besta í leiknum. Þegar staðan var 3-0 eða 4-0 áttum við samt nokkur færi en það er ekki okkar standard að tapa 4-0 fyrir City,“ sagði Wirtz. Wirtz, sem var keyptur frá Bayer Leverkusen í sumar fyrir 116 milljónir punda, sagði að Liverpool yrði hins vegar að spila betur gegn PSG til að eiga einhverja von um að halda einvíginu lifandi fyrir seinni leikinn á Anfield í næstu viku. Við þurfum að standa saman sem lið „Auðvitað þurfum við fulla orku og einbeitingu í 90 mínútur á morgun, annars eigum við engan möguleika. Við þurfum að standa saman sem lið í 90 mínútur, líka á erfiðum augnablikum,“ sagði Wirtz. „Ef við fáum á okkur mark verðum við að standa saman og trúa því að við getum samt unnið þennan leik og við eigum líka enn seinni leikinn á heimavelli. Þetta er mjög stór keppni, Meistaradeildarleikir eru alltaf sérstakir, svo við reynum að njóta þess og komast áfram úr þessari umferð,“ sagði Wirtz. Við erum góðir í stórum leikjum „Við vitum að það er erfitt því bestu lið heims spila í Meistaradeildinni, en það er gott að spila gegn þessum liðum og ég held að við höfum sýnt á þessu tímabili að við erum góðir í stórum leikjum, sérstaklega í Meistaradeildinni. Við trúum á okkur sjálfa, við erum með góðan hóp með góðum karakterum og frábærum leikmönnum, og líka góðan stjóra sem reynir að undirbúa okkur vel fyrir leikinn,“ sagði Wirtz. „Seinni leikurinn á heimavelli er kannski forskot, svo við reynum að gera okkar besta og koma með góð úrslit til Anfield,“ sagði Wirtz. Leikur Paris Saint Germain og Liverpool í kvöld verður í beinni útsendingu á SÝN Sport og hefst útsendingin klukkan 18.50 en klukkan 18.30 fer í gang upphitun fyrir Meistaradeildarkvöldið og eftir leikinn verður allt gert upp í Meistaradeildarmörkunum.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira