„Heppnir að tapa aðeins 2-0“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 05:13 Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, sést hér þungt hugsi á Parc des Princes í gær þar sem Paris Saint-Germain lék sér að liði hans. Getty/Chris Brunskill Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, viðurkenndi að lið hans hefði verið „tætt í sundur“ af Evrópumeisturunum í 2-0 tapi fyrir Paris Saint Germain í gærkvöldi í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Mörk frá Désiré Doué og Khvicha Kvaratskhelia tryggja að PSG fer til Anfield í seinni leikinn næsta þriðjudag með örugga forystu, en lið Luis Enrique hefði getað unnið leikinn með fimm eða sex marka mun miðað við færin. Slot notaði 3-4-3 leikkerfi og setti Mohamed Salah á bekkinn í tilraun til að halda aftur af PSG, en sú aðferð dugði ekki til að halda heimamönnum í skefjum. Þrátt fyrir tapið í fyrri leiknum segir Slot að Liverpool geti enn bjargað einvíginu og komist í undanúrslit með því að vinna seinni leikinn á Anfield. Mjög gott að við séum enn þá inni í einvíginu „Ef maður lítur á allan leikinn þá held ég að við séum heppnir að tapa aðeins 2-0. Ég held að það hafi verið mjög gott fyrir okkur að við séum enn þá inni í einvíginu, við getum fengið þá á Anfield og við vitum hversu góður Anfield getur verið fyrir okkur,“ sagði Slot. „En auðvitað heldur maður að maður geti gert betur. Við vorum í varnarham stóran hluta leiksins en kannski er það líka vegna þess tímabils sem við erum á, við erum í varnarham,“ sagði Slot. Hafa hraða alls staða „Þeir hafa hraða alls staðar á vellinum, hvert sem maður lítur sér maður ótrúlegan hraða. [Achraf] Hakimi og [Nuno] Mendes eru ótrúleg sóknarógn – þeir spretta ekki einu sinni, þetta er á hærra stigi en sprettur og maður verður að kljást við það,“ sagði Slot. „Yfirleitt eru leikmenn eins og Jeremie [Frimpong] og Milos [Kerkez] betur í stakk búnir til að takast á við þetta en hreinræktaðir kantmenn, en þegar við reyndum að pressa þá vorum við tættir í sundur,“ sagði Slot. „Allar leikaðferðir hafa verið reyndar hér en úrslitin eru alltaf þau sömu, Paris Saint-Germain keyrir yfir andstæðingana. Þeir voru betra liðið. Við gáfumst ekki upp og þess vegna eigum við enn möguleika. Þeir héldu okkur á lífi með því að skora ekki úr nokkrum dauðafærum,“ sagði Slot. Liverpool verður nú að vona að Anfield-áhrifin geti hvatt þá til ólíklegs sigurs í seinni leiknum og Slot segir að stuðningsmenn félagsins eigi stóran þátt að leika í næstu viku. Þá geta stuðningsmenn verið mjög hjálplegir „Við munum vonandi sýna annan leik á Anfield. Ef maður vill pressa mjög ákaft, þá geta stuðningsmenn verið mjög hjálplegir, andrúmsloftið er mjög hávært. Það er augljóst að við munum ekki spila með sömu leikaðferð og við spiluðum í kvöld, en fótboltinn hefur sýnt svo oft að ekkert er ómögulegt,“ sagði Slot. „Anfield getur gert mikið. Stuðningsmenn okkar skipta miklu máli fyrir okkur, en þess er líka þörf því það var alveg ljóst í dag að við þurfum meira á stuðningsmönnum okkar að halda en nokkru sinni fyrr,“ sagði Slot.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira