Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Kjartan Kjartansson skrifar 9. apríl 2026 11:30 John Healy, varnarmálaráðherra Bretlands, greindi frá aðgerðinni í Norðursjó á blaðamannafundi í dag. AP/Yui Mok Breski og norski herinn stóðu fyrir nokkurra vikna langri aðgerð vegna þriggja rússneskra kafbáta sem sáust nærri sæstrengum í Norðursjó. Varnarmálaráðherra Bretlands segir að kafbátarnir hafi á endanum gefist upp og yfirgefið svæðið.
Einn rússneskur árásarkafbátur og tveir njósnakafbátar voru á sveimi nærri sæstreng norður af Bretlandseyjum. Freigáta, herþotur og hundruð hermanna fylgdust með ferðum þeirra í heila viku þar til þeir höfðu sig á brott, að sögn Johns Healy, varnarmálaráðherra Bretlands. Rússar eru taldir standa að baki ýmis konar skemmdarverkum í Evrópu um þessar mundir í svonefndum blönduðum hernaði þeirra gegn álfunni sem felur einnig í sér tölvuárásir af ýmsum toga. Healy sagðist senda Rússum þeim skilaboð með aðgerðinni í Norðursjó að Bretar fylgdust með ferðum þeirra nærri sæstrengum og neðansjávarleiðslum, að því er kemur fram í frétt AP-fréttastofunnar. „Þið ættuð að vita að við munum ekki líða neinar tilraunir til þess að skemma þær og það mun hafa alvarlegar afleiðingar,“ sagði ráðherrann eftir aðgerðina sem stóð yfir í tæpan mánuð. Tore O. Sandvik, varnarmálaráðherra Noregs, staðfestir að Norðmenn hafi tekið þátt í aðgerðinni. Norsk eftirlitsflugvél og freigáta hafi verið send í Norðursjó. „Þetta er bæði fæling og vörn. Noregur ógnar engum,“ segir Sandvik við norska ríkisútvarpið. Bresk stjórnvöld ákváðu í síðasta mánuði að ganga loks harðar fram gegn svonefndum skuggaflota Rússa. Hann nota þeir til þess fremja spellvirki í Evrópu og komast hjá viðskiptaþvingunum sem þeir sæta vegna stríðsreksturs þeirra í Úkraínu.
Bretland Noregur Rússland Öryggis- og varnarmál Hernaður Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Sjá meira