Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Kjartan Kjartansson skrifar 9. apríl 2026 14:54 Vjakselav Kirillov, dómarinn sem kvað upp úrskurð um að mannrétitindasamtökin Memorial skuli skilgreinast glæpsamleg öfgasamtök. AP/Alexander Zemlianichenko Rússneskur dómstóll lýsti starfsemi elstu mannréttindasamtaka landsins ólöglega í dag. Úrskurðurinn er liður í gengdarlausri herferð stjórnvalda í Kreml gegn hvers kyns andófi í landinu.
Mannréttindasamtökin Memorial voru stofnuð á níunda áratug síðustu aldar til þess að minnast fórnarlamba kúgunarvélar Sovétríkjanna sálugu. Þau hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 2022, sama ár og Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu. Stjórnvöld lýstu Memorial útsendara erlendra afla fyrir nokkrum árum. Þá skilgreiningu hafa rússnesk stjórnvöld notað til þess að þrengja að frjálsum félagasamtökum og fjölmiðlum. Þeim var skipað að hætta starfsemi árið 2021 en samtökin virtu það að vettugi. Nú hefur dómstóll fallist á kröfu stjórnvalda um að skilgreina Memorial sem öfgasamtök og banna starfsemi þeirra í Rússlandi. Meðferð málsins fór fram fyrir luktum dyrum, að sögn AP-fréttastofunnar. Úrskurðurinn þýðir að félagar í samtökunum og stuðningsmenn þeirra geta átt yfir höfði sér langa fangelsisdóma. Slíkum úrskurðum hefur áður verið beitt til þess að dæma fólk afturvirkt fyrir aðild að félagsskap sem dómstólar úrskurða öfgasamtök. Samtökin segja í yfirlýsingu ekki kannast við að „alþjóðalega borgarahreyfingin Memorial“ sem rússneska dómsmálaráðuneytið vísaði til í kröfu sinni til dómstólsins væri til. Úrskurðurinn gerði rússneskum stjórnvöldum þó kleift að þjarma enn frekar að verkefnum samtakanna þar, þátttakendum og stuðningsmönnum. Norska Nóbelsnefndin, sem veitir friðarverðlaunin, fordæmdi úrskurðinn í dag og kallaði hann aðför að tjáningarfrelsi og mannlegri reisn. Hvatti hún rússnesk stjórnvöld til þess að hætta að ofsækja Memorial og félaga í samtökunum.
Rússland Mannréttindi Nóbelsverðlaun Innrás Rússa í Úkraínu Sovétríkin Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira