„Arc de Trump“ rísi í Washington Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. apríl 2026 14:21 Teikningarnar voru birtar í gærkvöldi. AP Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta birti teikningar af sigurboga sem til stendur að reisa við Arlington-kirkjugarðinn í Washington. Boginn hefur víða verið kallaður „Arc de Trump“.
Boginn stæði við annan enda Arlington Memorial-brúarinnar andspænis minnisvarðann um Abraham Lincoln forseta. Hann yrði rúmlega 75 metrar á hæð og því rúmum fimmtán metrum hærri en sigurboginn franski. Yfir boganum gnæfði tæplega tuttugu metra há stytta af hinni svokölluðu Lady Liberty, alsettri gulli. Teikningarnar fara í næstu viku fyrir nefnd sem sér um mannvirki og minnisvarða í Washington höfuðborg landsins. Á síðasta ári vék Donald Trump Bandaríkjaforseti öllum meðlimum nefndarinnar og setti trygga stuðningsmenn í þeirra stað. Í tilkynningu frá Hvíta húsinu segir að sigurboginn komi til með að verða einkennandi fyrir borgina og landið allt. Staðsetning bogans við inngang Arlington-kirkjugarðarins verði einnig stöðug áminning „um þær göfugu fórnir sem svo margar bandarískar hetjur hafa fært yfir 250 ára sögu okkar til að við getum notið frelsis okkar í dag“. Samkvæmt umfjöllun Guardian liggur ekki fyrir hvað sigurboginn muni kosta en það verði gefið út von bráðar.
Bandaríkin Donald Trump Styttur og útilistaverk Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Sjá meira