Innlent

Maður hífður upp úr Ölfus­á

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Lögreglan nýtur aðstoðar björgunarsveita og Landhelgisgæslunnar.
Lögreglan nýtur aðstoðar björgunarsveita og Landhelgisgæslunnar. Aðsend

Sigmaður Landhelgisgæslunnar hífði mann upp úr Ölfusá nú rétt fyrir klukkan fimm en leit hafði staðið yfir að manninum í ánni frá því klukkan rúmlega fjögur í dag.

Sigmaðurinn hífði manninn upp innan við korteri eftir að lögreglu barst tilkynning um að maður hefði fallið í ána. Stuttur viðbragðstími orsakast af því að þyrlusveitin var á leið á æfingu og gat því strax tekið stefnuna á Selfoss. 

Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Maðurinn var fluttur á Landspítalann en Ásgeiri er ekki kunnugt um líðan mannsins.

Lögreglan gaf sömuleiðis út tilkynningu vegna málsins en þar kemur einnig fram að ekki sé vitað um líðan mannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×