Handbolti

Haukakonur með frá­bæran sigur í Eyjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Sif Helgadóttir varði tíu skot í kvöld í marki Hauka.
Sara Sif Helgadóttir varði tíu skot í kvöld í marki Hauka. Vísir/Anton

Haukar eru komnir í 1-0 í undanúrslitaeinvígi sínu á móti ÍBV í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta.

Haukakonur mættu til Vestmannaeyja í kvöld og unnu frábæran þriggja marka sigur, 29-26.

ÍBV endaði ofar í töflunni og var því með heimavallarréttinn en Haukarnir tóku hann af þeim í fyrsta leik. Þrjá sigra þarf til að komast í úrslitaeinvígið.

Eyjakonur byrjuðu vel, komust í 3-1 og voru 13-11 yfir í hálfleik.

Það var síðan jafnt á flestum tölum þar til Haukar breyttu stöðunni úr 22-22 í 28-24 með frábærum kafla. Þær voru með leikinn eftir það og fögnuðu vel dýrmætum útisigri.

Embla Steindórsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Hauka og þær Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Rakel Oddný Guðmundsdóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir voru allar með fjögur mörk.

Sandra Erlingsdóttir skoraði níu mörk fyrir ÍBV og Birna Berg Haraldsdóttir var með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×