Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Kristján Már Unnarsson skrifar 16. apríl 2026 12:24 Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs, segir Ísafjarðarflugið tryggt með ásættanlegum hætti og á mjög góðum flugvélum. samsett mynd Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur.
Icelandair var eina félagið sem bauð í Ísafjarðarflugið og hljóðaði tilboð félagsins upp á 3,5 milljarða króna. Vegagerðin hafnaði tilboðinu enda var það hátt yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á 1,3 milljarða króna. Núna hefur Vegagerðin hins vegar náð samkomulagi við Icelandair um að félagið taki að sér verkefnið næstu fjögur árin gegn 1.690 milljóna króna meðgjöf ríkisins á samningstímanum, eða sem nemur 422 milljónum króna á ári, og verða 37 sæta Dash 8 Q200-vélar áfram notaðar á flugleiðinni. Flugvél Icelandair beygir inn að flugbrautinni.Vilhelm Samningsfjárhæðin er 52% lægri en tilboð Icelandair hljóðaði upp á. Á móti kemur að dregið er úr tíðni flugferða og verða allt niður í sjö ferðir á viku yfir háveturinn. Upphaflegar forsendur útboðsins gerðu ráð fyrir tíu til fjórtán ferðum á viku, mismunandi eftir mánuðum, eða alls 632 ferðum að lágmarki yfir árið. Núna var samið um sjö til tíu ferðir á viku eða 452 ferðir að lágmarki yfir árið, sem er 28% fækkun ferða. „Mér finnst bara best að líta á þetta sem varnarsigur,“ sagði formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, Gylfi Ólafsson, spurður um samninginn. Frá Ísafjarðarflugvelli.Vilhelm „Við vorum farin að verða dálítið áhyggjufull á tímabili. Flugið er náttúrulega gríðarlega mikilvægt fyrir okkur og við fáum ekki allar okkar kröfur uppfylltar í þessu. Það eru fá flug um veturinn og svo framvegis. En flugið er allavega tryggt til fjögurra ára og með svona ásættanlegum hætti og á mjög góðum flugvélum. Þetta er lágmarksfjöldi flugferða þannig að við höfum allar væntingar til þess að þeim verði svo fjölgað þegar mikið er að gera og mikið um að vera. Enda er bara mjög mikið að gera og mikið um að vera í atvinnulífi og menningarlífi hér fyrir vestan þessi misserin,“ sagði Gylfi Ólafsson.
Ísafjarðarbær Icelandair Fréttir af flugi Byggðamál Samgöngur Bolungarvík Súðavíkurhreppur Reykjavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Vegagerðin og Icelandair hafa náð samkomulagi um flug til Ísafjarðar. Samningurinn gildir til fjögurra ára. Lágmarksfjöldi ferða er 452 hringferðir á ári. 16. apríl 2026 08:38 Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Skilyrði útboðs Vegagerðarinnar um að flugvél með jafnþrýstibúnaði þyrfti í Ísafjarðarflug útilokaði Norlandair frá því að geta boðið í flugleiðina. Framkvæmdastjóri Norlandair segir að flugtæknilega sé þetta ekki nauðsynleg krafa. 10. apríl 2026 06:56 Icelandair hættir flugi til Ísafjarðar Icelandair hyggst hætta að fljúga til Ísafjarðarbæjar eftir sumarið 2026. Ástæðan er sérstaða flugvallarins sem leiðir til þess að einungis litlar vélar geti lent þar og vegna framkvæmda í Grænlandi. 3. mars 2025 21:43 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Sjá meira
Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Vegagerðin og Icelandair hafa náð samkomulagi um flug til Ísafjarðar. Samningurinn gildir til fjögurra ára. Lágmarksfjöldi ferða er 452 hringferðir á ári. 16. apríl 2026 08:38
Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Skilyrði útboðs Vegagerðarinnar um að flugvél með jafnþrýstibúnaði þyrfti í Ísafjarðarflug útilokaði Norlandair frá því að geta boðið í flugleiðina. Framkvæmdastjóri Norlandair segir að flugtæknilega sé þetta ekki nauðsynleg krafa. 10. apríl 2026 06:56
Icelandair hættir flugi til Ísafjarðar Icelandair hyggst hætta að fljúga til Ísafjarðarbæjar eftir sumarið 2026. Ástæðan er sérstaða flugvallarins sem leiðir til þess að einungis litlar vélar geti lent þar og vegna framkvæmda í Grænlandi. 3. mars 2025 21:43