Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Sindri Sverrisson skrifar 20. apríl 2026 15:45 Feðgarnir áttu það sameiginlegt að hafa spilað fyrir Val við afar góðan orðstír og fallast hér í faðma á leik Vals gegn Njarðvík fyrir tveimur árum. vísir/Hulda Margrét „Hann veit að pabbi hans var goðsögn í leiknum og hann er að reyna að gera pabba sinn stoltan,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, um Frank Aron Booker sem átti algjöran stjörnuleik í sigrinum gegn Keflavík í gærkvöld.
Frank Aron var í aðalhlutverki og skoraði 29 stig þegar Valur sló út Keflavík og kom sér í undanúrslit Bónus-deildarinnar í körfubolta, þar sem liðið mætir Grindavík. Hann hafði mest skorað 20 stig í leik í úrslitakeppni þar til í gær og síðustu mánuðir hafa verið honum afar erfiðir, eftir að pabbi hans Frank Booker eldri lést í febrúar. Engu að síður lék Frank Aron stórkostlega í gærkvöld en hann minntist svo pabba síns í viðtali við Andra Má Eggertsson: „Ég veit að hann horfir niður og er mjög ánægður,“ sagði Frank Aron klökkur en viðtalið við hann og Finn Frey í Körfuboltakvöldi í gær má sjá hér að neðan. Klippa: Finnur og Frank Aron ræddu um áfallið „Þetta er búið að vera drulluerfitt og ég get alveg verið hreinskilinn með að ég er ennþá smá dauður að innan en þetta er partur af lífinu og ég þarf bara einhvern veginn að lifa með þessu. Hann veit að ég elska hann mjög mikið og hann elskaði mig út af lífinu eins og þið sáuð fyrir tveimur árum síðan. Ég veit að hann er algjör Valsari og hann er mjög ánægður núna,“ sagði Frank Aron. Tilfinningavera og yndi að vera í kringum Finnur var svo spurður út í lærisvein sinn og hvernig það hefði verið fyrir hann og liðið að takast á við það þegar Frank Booker lést, 61 árs gamall. „Aron er mikil tilfinningavera, mikil orka í honum og hann kemur til dyranna nákvæmlega eins og hann er klæddur. Algjört yndi að vera í kringum og getur verið smá erfiður líka á móti þegar hann er í ADHD-inu sínu að rugla eitthvað Þetta er svakalegt áfall sem hann lendir í. Pabbi hans fer mjög snögglega og það er erfitt að vera í annarri heimsálfu. En hann og Halla eru búin að tækla þetta mjög vel og við búnir að taka utan um hann eins og hægt er,“ sagði Finnur en brot úr viðtalinu við hann má sjá í spilaranum hér að ofan.
Valur Bónus-deild karla Körfuboltakvöld Tengdar fréttir Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Valur og Keflavík mætast í oddaleik í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta. Sigurvegarinn mætir Grindavík í undanúrslitum en tapliðið fer í sumarfrí. 19. apríl 2026 21:12 Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Formúla 1 Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira
Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Valur og Keflavík mætast í oddaleik í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta. Sigurvegarinn mætir Grindavík í undanúrslitum en tapliðið fer í sumarfrí. 19. apríl 2026 21:12