Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Samúel Karl Ólason skrifar 20. apríl 2026 19:50 Kash Patel fer fram á fúlgur fjár vegna greinar þar sem haft er eftir ónafngreindum heimildarmönnum að hann sé drykkfelldur og óráðanlegur í starfi, svo eitthvað sé nefnt. AP/John Amis Kash Patel, umdeildur yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI), hefur höfðað mál gegn fjölmiðlinum Atlantic og blaðamanni miðilsins, vegna fréttar um meint vandræði hans í starfi og einkalífi. Í nýlegri grein Atlantic er meðal haft eftir ónafngreindum heimildarmönnum að Patel eigi við áfengisvanda að stríða og hafi jafnvel verið ölvaður í vinnunni.
Því er einnig haldið fram í greininni, sem finna má hér, að ítrekað hafi þurft að fresta fundum vegna partístands Patels og að sé mikið fjarverandi og oft sé erfitt að ná í hann. Í greininni er vitnað í fjölda ónafngreindra heimildarmanna innan FBI og stjórnvalda í Bandaríkjunum. Þar er vísað til drykkju hans, lélegrar mætingu í vinnu, vænisýki og að hann láti starfsmenn gangast lygapróf í leit að uppljóstrurum, svo eitthvað sé nefnt. Þá er einnig sagt frá því að fyrr í þessum mánuði hafi Patel átt erfitt með að komast inn í tölvukerfi FBI og að hann hafi orðið sannfærður um að búið væri að reka hann og loka á aðgengi hans að kerfinu. Hann er sagður hafa hringt í aðstoðarmenn sína og bandamenn sína og staðhæft að búið væri að reka hann. Fljótt kom þó í ljós að tæknilegur galli kom í veg fyrir að hann kæmist í tölvukerfið. Í Atlantic segir að Patel hafi svo sannarlega ástæðu til að óttast um starf sitt. Margir innan stjórnvalda vestanhafs búist við því á næstunni og er vísað til drykkju hans og annarra vandræða í starfi. Hegðun hans er sögð hafa valdið áhyggjum í dómsmálaráðuneytinu og innan veggja FBI og er sérstaklega vísað til drykkju hans. Í einu tilfelli þurfti, samkvæmt heimildum Atlantic, að nota búnað sem sérstakan sérsveitabúnað til að komast gegnum læstar dyr, þar sem Patel var inni og svaraði ekki símtölum eða banki á dyrnar. Áður hafa fjölmiðlar vestanhafs sagt fréttir af því að Patel hafi ítrekað verið gagnrýndur af starfsmönnum FBI og yfirmönnum sínum í dómsmálaráðuneytinu. Það hafi meðal annars verið gert vegna umfangsmikillar notkunar hans á kostnaðarsömum fríðindum sem fylgja embætti hans. Hann hafi notað einkaþotu FBI mjög mikið og jafnvel látið sérsveitarmenn vernda kærustu sína. Í grein Atlantic kemur einnig fram að bæði Hvíta húsið og talsmaður Patels hafni því að ásakanir heimildarmannanna séu réttar og að starf Patels sé í hættu. Trump er sagður ánægður með störf hans og sérstaklega það að Patel hafi verið duglegur við að segja upp fólki sem hefur með nokkrum hætti komið að því að rannsaka Trump sjálfan í gegnum árin. Trump er þó sagður vera ósáttur við að Patel hafi ekki verið nægilega duglegur við að rannsaka pólitíska andstæðinga sína nægilega vel. Sjá einnig: Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Þá mun ekki hafa fallið í kramið hjá Trump þegar Patel var myndaður fagna með bandarískum landsliðsmönnum í hokkí eftir sigur þeirra á Ólympíuleikunum á Ítalíu í febrúar. Þá birtist myndband af Patel í klefa liðsins þamba bjór og fagna sigrinum með miklum látum. Atlantic birti einnig yfirlýsingu frá Patel: „Birtið þetta, allt rugl, ég sé ykkur í dómsal. Mætið með ávísanaheftið.“ Í samtali við blaðamann Reuters ítrekaði Patel að greinin væri ekkert nema „lygar“. „Þau fengu sannleikann áður en þau birtu greinina, en þau ákváðu samt að birta þessar lygar.“ Í lögsókn Patels segier að Atlantic hafi ekki varað bréfi frá lögmönnum hans sem sent var klukkan fjögur á eftirmiðdegi föstudagsins síðasta, rúmum tveimur tímum fyrir útgáfu fréttarinnar, en þar báðu þeir um að birtingu fréttarinnar yrði frestað svo þeir fengju meiri tíma til að svara. Patel fer fram á 250 milljónir dala í skaðabætur. Það samsvarar um 30,5 milljörðum króna. Forsvarsmenn Atlantic segjast standa við fréttaflutninginn og að þeir muni verjast í dómsal.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hafi svikið tugi milljóna úr íslenskum banka Innlent „Gjörsamlega óásættanlegt“ Erlent „Kynþáttaraunhyggjumaður“ flutti ræðu á viðburði Ungra miðflokksmanna Innlent Golfkúlum rigndi yfir bílaumboð og ekki í fyrsta sinn Innlent Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Sé gríðarlega neikvætt fyrir samfélagið í heild sinni Innlent Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Erlent Fleiri fréttir „Gjörsamlega óásættanlegt“ Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Sjá meira