Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar 22. apríl 2026 11:01 Morgunblaðið afrekaði að breiða yfir stórfrétt sem blaðið þó birti og vann. Í fréttinni, sem birtist 11. apríl, staðfesta sérfræðingar stærstu banka landsins að lánakjör almennings af húsnæðislánum myndu lækka og batna með upptöku evru. Verðtrygging myndi leggjast af og fyrirsjáanleiki í lánamálum heimila (og fyrirtækja) aukast. Til viðbótar má lesa úr fréttinni að til viðbótar við lægri grunnvexti mætti bæta vaxtakjör og samkeppnishæfni bankanna með því að leggja af ýmsar séríslenskar reglur sem settar hafa verið vegna smæðar hagkerfisins og krónunnar. Þetta myndi einnig augljóslega leiða af upptöku evru og inngöngu í Evrópusambandið. Lægri vextir – Arion Drögum þetta fram. Arion-banki: „Almennt megi vænta þess að með upptöku evru myndu vextir íbúðalána lækka, af þeirri einföldu ástæðu að þeir myndu miðast við evruvexti, og lánin að mestu fjármögnuð af bankanum með innlánum í evrum og sértryggðum skuldabréfum í evrum.“ Lægri vextir – Landsbanki og Íslandsbanki Landsbankinn og Íslandsbanki eru sagðir taka í svipaðan streng en að þeir hafi ekki lokið „greiningu sinni“ á áhrifum af aðild Íslands að Evrópusambandinu. Lægri vextir – Kvika „Mestu áhrifin myndu næstum örugglega felast í lækkun grunnvaxta sem hafa sögulega verið umtalsvert hærri í evrum en íslenskum krónum. Síðastliðin 25 ár hafa stýrivextir í íslenskum krónum alltaf verið hærri en í evrum og munurinn oftast verið á bilinu 3-5 prósentustig en er í dag rúmlega 5 prósentustig,“ segir í svari Kviku. Lægra vaxtaálag vegna afnáms sér-íslenskra reglna Allir bankarnir telja að afnám sér-íslenskra reglna á bankakerfið myndi leiða til lægra vaxtaálags og lægri vaxta, ofan á lægri grunnvexti. Skýrt dæmi kemur fram um þetta í því sem haft er eftir Kviku. „Kvika segir líka mega gera ráð fyrir að vaxtaálag íslenskra banka á íbúalán myndi lækka, annars vegar vegna þess að draga myndi úr séríslenskum álögum á bankakerfið þegar það er orðið hluti af stærra myndsvæði, og hins vegar að líklegt sé að álag á sértryggð skuldabréf, sem bankarnir nota til að fjármagna íbúðalán sín, myndu lækka.“ Ég tek algerlega undir þær ályktanir sem sérfræðingur Kviku dregur: „Mjög erfitt verður fyrir opinbera aðila að réttlæta sérálögur á íslenska banka þegar þeir eru að hluti af stærra samkeppnissvæði.“ Þetta mun líka leiða til lægri vaxta. Lægri vextir vegna aukinnar samkeppni Mér fannst hressilegt að sjá Kviku líka staðfesta, það sem ég og ýmsir aðrir höfum bent á, að vextir myndu líka lækka á húsnæðislánum og fyrirtækjalánum vegna aukinnar samkeppni í kjölfar upptöku evru. Með orðum Kviku: „Í dag nýtur íslenskur bankamarkaður ákveðinnar samkeppnisverndar af því að engir erlendir bankar keppa hér á lánamarkaði í íslenskum krónum.“ Aðrir bankar nefndu ekki þennan samkeppnisvinkil sem er þó augljós. Sænskir bankar og aðrir alþjóðlegir bankar voru ekki lengi að hefja viðskipti í Eystrasaltslöndunum eftir upptöku evru þar, almenningi í þeim löndum til hagsbóta. Stærð hagkerfa þeirra var þó jafnlítil eða minni en Íslands, á sínum tíma. Lægri vextir eru lykilatriði í Evrópuumræðunni Ég ítreka hrós til Moggans fyrir að vinna efni í þessa frétt, en þetta var falið í blaðinu og ég hvet til þess að blaðið fylgi þessari umfjöllun eftir. Sama gildir um aðra fjölmiðla. Það er furðuleg þögn um íslenskt vaxtastig. Lægri vextir og fjármagnskostnaður eru lykilhagsmunir ungs fólks og húsnæðiskaupenda. Upptaka evru ætti að vera helsta baráttumál samtaka launafólks, neytenda og samtaka í byggingariðnaði. Verktakar segja sjálfir að fjármagnskostnaður sé að sliga þá. Ungt fólk er varla spurt. Enginn talar um evru. Þessa þögn þarf að rjúfa. Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Utanríkismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar