Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

„Hver vill ganga í gjald­þrota ríkja­sam­band?“

„Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ spyr Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., í viðtali við breska blaðið The Telegraph. Blaðið slær því upp að ríkisstjórn Íslands sé tilbúin til að banna hvalveiðar til að auðvelda inngöngu í ESB. Ísland sé eitt þriggja landa, auk Noregs og Japans, sem enn geri slíkt eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið lagði bann við hvalveiðum árið 1986.

Innlent
Fréttamynd

Enda­laust þvaður gæti fælt kjós­endur frá

Almannatengill segir að ef upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu séu óskýrar eða ef á reiki sé um hvað kosið er geti það leitt til aðgerðarleysis að hálfu kjósenda. 

Innlent
Fréttamynd

Guð­laugur segir Þor­gerði á hröðum flótta

Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður telur einsýnt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veigri sér við að mæta sér í kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem fram eiga að fara í lok ágústmánaðar.

Innlent
Fréttamynd

Þor­gerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór

Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hafði boðið Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrrverandi utanríkisráðherra til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Nú liggur fyrir að Þorgerður kemur því ekki við að mæta.

Innlent
Fréttamynd

„Skráningum rignir inn“

Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn fullri aðild að Evrópusambandinu. Stofnfundur fer fram á mánudag. Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnfélaga, segir að þó svo að baráttan fari fram um hásumar skynji hann mikinn áhuga. Skráningum rigni inn. Það sé ábyrgð þjóðar að kynna sér málið fyrir kosningar í ágúst.

Innlent
Fréttamynd

Stefnt á kapp­ræður milli utan­ríkis­ráðherra

Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hefur boðið utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og fyrrverandi utanríkisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Miðað er við að kappræðurnar fari fram 14. ágúst.

Innlent
Fréttamynd

„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, segist ætla að greiða atkvæði gegn framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið í ágúst. Ýmsum málum í sjávarútvegi þurfi að ganga frá innanlands áður en sótt er um aðild að ESB og ekki megi ofmeta samningsstöðu Íslands. 

Innlent
Fréttamynd

„Hlægi­legt þvaður gegn lýð­ræði!“

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafnar því alfarið að þeir sem aðhyllast „Já“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu séu málefnalegir en þeir sem tali fyrir „Nei-i“ séu óalandi og óferjandi rugludallar.

Innlent
Fréttamynd

„Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“

Umræðan um Evrópumálin og kosningarnar sem til stendur að halda 29. ágúst næstkomandi um hvort halda beri viðræðum áfram eða ekki eru að nálgast einhvers konar hástig. Sveinn Waage, ráðgjafi og fyrirlesari, segist ýmsu vanur en athugasemdir sem nú falla hafa gengið fram af honum.

Innlent
Fréttamynd

Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst

Rétt rúmlega helmingur landsmanna, 52 prósent, telur líklegast að ef atkvæðagreiðslan færi fram núna myndi hann greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný en rétt tæplega helmingur, 48 prósent, telur líklegast að hann greiddi atkvæði gegn því.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum eitt þeirra landa sem skilja fisk­veiðarnar einna best“

Utanríkisráðherra Spánar segir Spánverja eiga Evrópusambandinu mikið að þakka og að uppbygging landsins frá því að það gekk í sambandið fyrir fjörtíu árum hafi að miklu leyti verið fjármögnuð með sjóðum ESB. Hann ræddi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á opnum fundi í Norræna húsinu í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“

„Við erum búin að vera í ESB núna í 30 ár,“ segir Baldur Pétursson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Baldur er eindreginn stuðningsmaður evrunnar. „EES-samningurinn er um það bil 75-80% aðgangur að ESB. Við höfum góða reynslu af 80% aðild að ESB, þannig að það er ekki nema 20% eftir,“ segir Baldur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þingið komið í sumar­frí

Þingi hefur verið frestað og ganga alþingismenn nú út í sumarfrí. Lengsta umræðan á yfirstöðnu þingi fjallaði um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þing kemur saman á ný 8. september.

Innlent
Fréttamynd

Vilja segja „já til að sjá“

Stofnfundur samtaka fólks sem hyggst greiða atkvæði með framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið, SJÁ, verður haldinn í dag. Samtökin sameinist um að segja „já“ til að „sjá samning“.

Innlent
Fréttamynd

Nei-kvæðir ungliðar sam­einast gegn ESB

Fimm íslenskar ungliðahreyfingar þvert á hið pólitíska litróf hafa tekið sig saman og hyggjast stofna félagið Ung gegn ESB, sem hefur það að einsettu markmiði að sjá til þess að Íslendingar segi „nei“ í ágúst. Stofnfundur er haldinn á morgun, 17. júní, þar sem Birgir Ármansson og Sólveiga Anna Jónsdóttir verða meðal ræðumanna.

Innlent
Fréttamynd

Stefna á að hafa ný aðildar­ríki í styttri ól

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir nýjar reglur sem framkvæmdastjórnin er með í smíðum eigi að tryggja að ný aðildarríki fari að reglum og haldi ekki sambandinu í heljargreipum. Reglurnar muni „bíta fast“ þau ríki sem fara ekki eftir þeim.

Erlent
Fréttamynd

„Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“

Forsætisráðherra telur ekki þörf á þingstubbi í ágúst til þess að ræða fjármálaáætlun og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn fór fram á. Þjóðin eigi nú orðið. Stefnt er að því að ljúka þingstörfum í seinni hluta vikunnar.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri hlynntir en and­vígir sam­kvæmt nýrri könnun

Fleiri eru hlynntir en and­vígir því að Ís­land hefji aðildar­viðræður við Evrópu­sam­bandið sam­kvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir DV. Alls sögðust 44,5 pró­sent svar­enda vera hlynntir viðræðum en 39,4 pró­sent and­vígir. Á sama tíma svöruðu 14,6 pró­sent veit ekki og 1,5 pró­sent vildu ekki svara.

Innlent
Fréttamynd

Já, tökum okkur Fær­eyinga til fyrir­myndar

Hérlendir Evrópusambandssinnar hafa ítrekað sagt að við Íslendingar ættum að taka frændur okkar Færeyinga til fyrirmyndar í Evrópumálunum. Sem er áhugavert þar sem Færeyjar eru ekki í Evrópusambandinu.

Skoðun
Fréttamynd

Þjónusta þjarka og falskra að­ganga gengur kaupum og sölu

Þjónusta þjarka og falskra aðganga til að afvegaleiða umræðuna og auka upplýsingaóreiðu gengur kaupum og sölu á netinu. Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur líklegt að erlendir aðilar muni reyna að hafa áhrif fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB.

Innlent