Grindavík - Njarðvík 94-75 | Grindavík er einum sigri frá úrslitaeinvíginu Kári Mímisson skrifar 23. apríl 2026 18:32 Grindavík þarf einn sigur til viðbótar gegn Njarðvík. vísir Grindavík er aðeins einum sigri frá úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna í körfubolta, eftir afar öruggan 94-75 sigur gegn Njarðvík í öðrum leik liðanna. Grindavík sótti sterkan sigur á útivelli í fyrsta leik liðanna og fagnaði síðan mjög öruggum sigri á heimavelli í kvöld. Bæði lið byrjuðu hægt hér í kvöld en það mátti greinilega sjá einhvern skjálfta í leikmönnum beggja liða. Þegar um fimm mínútur voru liðnar af leiknum fór heldur betur allt í gang hjá heimakonum í Grindavík. Þær náðu 14-0 kafla og breyttu stöðunni úr 7-8 í 21-8 og gáfu tóninn fyrir það sem koma skyldi. Sóknarleikur Njarðvíkur var afar dapur á þessum kafla en liðið skoraði aðeins 12 stig í þessum fyrsta leikhluta og þar af var Brittany Dinkins með 10. Njarðvíkingar byrjuðu annan leikhlutann af mun meiri krafti en það sem sást til liðsins í fyrsta leikhluta. Gestirnir náði aðeins að brúa bilið með góðu áhlaupi án þess að það hafi nokkur áhrif á Grindavík sem svaraði strax af krafti með frábærum kafla. Munurinn var 18 stig í hálfleik, staðan 45-27 þegar liðin héldu inn til búningsklefa. Ekki veit ég hvað Einar Árni, þjálfari Njarðvíkur sagði við sínar konur í hálfleik en það var allt annað lið sem mætti til leiks í seinni hálfleik. Á örskömmum tíma var liðið búið að minnka forystuna í tvö stig, 50-48 eftir að hafa sett niður fjórar þriggja stiga körfur í röð. Njarðvík var búið að setja eina af þrettán í fyrri hálfleik og því væntanlega kærkomið að sjá þetta loksins lenda í körfunni. Grindavík náði þó að brúa bilið aftur aðeins en munurinn var átta stig fyrir fjórða leikhluta. Spennan var mikil fyrir fjórða leikhluta þar sem Njarðvík mætti með mikinn vind í seglin. Því miður fyrir grænklædda gestina þá tókst þeim aldrei að gera neina alvöru atlögu að heimakonum og að lokum var það Grindavík sem vann 19 stiga sigur. Lokatölur 94-75 fyrir Grindavík sem freistar þess á að sópa Njarðvík næsta mánudag. Atvik leiksins Farhiya Abdi verður að fá það. Í gjörsamlega vonlausri stöðu og skotklukkan að renna út, kastar hún boltanum bara í áttina að körfunni og á einhvern ótrúlegan hátt ratar þetta niður. Þetta var ein af þessum körfum sem þú bara skilur ekki. Stjörnur og skúrkar Abby Beeman var algjörlega fremst meðal jafningja í kvöld. Hún skoraði 24 stig og gaf 15 stoðsendingar, ekki slæmur dagur á skrifstofunni myndu einhverjir segja. Annars þá fékk Grindavík gott framlag frá öllum sínum leikmönnum hér í kvöld. Skúrkur dagsins verður að vera skotnýting Njarðvíkur í fyrri hálfleik. Dómarinn Þetta var ekki þeirra dagur og ég held að þeir viti það. Þeir höfðu ekki úrslitaáhrifin í kvöld svo það sé sagt en ég verð að viðurkenna að það var ansi oft sem ég var ekki að skilja þá. Stemning og umgjörð Fín mæting í dag þó að maður vilji alltaf sjá meira. Grindavíkur geitin dansaði vel og lengi og Jeremy Pargo öskraði vel á sínar konur. Njarðvíkingar mættu líka vel í stúkuna og studdu sínar konur vel þó svo að það hafi ekki borið árangur í kvöld. Viðtöl „Þetta sýnir mögulega breytinguna á liðinu“ Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var að vonum sáttur með sannfærandi sigur liðsins í kvöld. „Ég er virkilega sáttur með spilamennskuna og er stoltur af stelpunum. Þær sýna karakter með því að mæta svona til leiks og klára þetta vel.“ Grindavík var með tögl og hagldir framan af leiknum en í þriðja leikhluta virtist þetta vera að snúast og falla Njarðvíkur megin. Var farið að fara eitthvað um þig á þessum tímapunkti? „Já, það fór um mig. Við vorum mjög léleg í svona stöðu fyrir mánuði eða svo en þetta sýnir mögulega breytinguna á liðinu. Þær eru orðnar sterkari á svellinu, vinna vel úr erfiðleikunum og halda áfram. Ég þurfti að garga nokkrum sinnum á þær og minna þær aðeins á sem gekk bara vel. Þetta er eitthvað sem við erum búin að tala um enda er þetta leikur áhlaupa eins og oft hefur verið sagt. Þær náðu þessu góða áhlaupi í þriðja leikhluta sem við stóðumst og eigum svo frábæran fjórða leikhluta.“ Staðan er 2-0 fyrir Grindavík sem freistar þess að sópa sterku liði Njarðvíkur út á mánudaginn kemur. Liðið virðist vera óstöðvandi í þessari úrslitakeppni því von á að spyrja hvað þarf þjálfarinn að gera núna? „Ég á eftir að skoða þennan leik betur. Við vorum 2-0 yfir gegn Haukum í fyrra og töpuðum 3-2. Við þurfum að koma því í hausinn á okkur að við séum ekki orðnar neinar súperstjörnur heldur erum við lið sem er að verða betra. Njarðvík eru góðar en þær hittu mjög illa. Hulda og Sara eru betri í körfubolta en þær sýndu í kvöld, þær hitta almennt betur en þetta úr opnum skotum og það er alveg klárt mál að þær eiga ekki eftir að klikka aftur svona í Njarðvík. Þær fá of mikið af opnum skotum og við gerðum illa í að gefa þeim þau. Það er því ýmislegt sem Njarðvík gerði illa sem ég veit að Einar er alls ekki sáttur með, minna hjá mér en þó eitthvað sem þarf að laga.“ Bónus-deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík