Krefja Apple um íslensku Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. apríl 2026 13:47 Logi sendi kveðju frá hinum ýmsu tónlistarmönnum á fundinum með Apple. Logi Einarsson menningarráðherra fundaði í síðustu viku með fulltrúum Apple í Lundúnum og óskaði eftir því að íslenska verði hluti af iOs-stýrikerfi Apple. Á fundinum sýndi Logi myndband með kveðjum frá íslenskum listamönnum sem hafa unnið með Apple þar sem þeir lýstu yfir mikilvægi íslenskrar tungu.
Á fundinum lagði ráðherra áherslu á hve mikilvægt það væri tungumáli sem varðveist hefur í yfir þúsund ár að það þróist samhliða nýjustu tækni og að nýjasta tækni sé aðgengileg á íslensku. Ráðherran afhenti sömuleiðis áskörun fyrir hönd ÖBÍ þar sem fyrirtækið er hvatt til þess að innleiða íslensku og standa þannig vörð um eitt af kjarnagildum sínum sem er aðgengi. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að íslensk tónlist, bókmenntir og sjónvarpsefni beri hróður íslenskrar menningar víða, fjölbreytt íslenskt efni sé aðgengilegt á streymisveitum Apple og fjölmargir íslenskir listamenn hafi átt í beinu samstarfi við fyrirtækið. Vinir Apple sendu kveðju Ráðuneytið sýndi því á fundinum myndband með íslenskum „vinum Apple“ sem hafa unnið með Apple og lýstu yfir ástríðu sinni fyrir tungumálinu og mikilvægi þess að tungumálið sé aðgengilegt í nýjustu tækni. „Íslensk menning er einstök og gerir sig gildandi hvar sem er í heiminum. Við erum ekki mörg en við erum fær í mörgu. Það kom upp sú hugmynd að enda fundinn á að bera Apple kveðju frá sameiginlegum vinum Apple og íslenskunnar með stuttu myndbandi. Að íslenskum sið var hóað í sameiginlega vini án fyrirvara og þeir beðnir að senda kveðju sem tókst svona glimrandi vel og vakti mikla lukku viðstaddra,“ segir Logi. Í myndbandinu má sjá leikarana Ólaf Darra Ólafsson og Heru Hilmarsdóttur sem léku í vinsælum þáttaröðum Apple TV+, tónskáldið Atla Örvarsson sem hlaut BAFTA-verðlaun fyrir tónlist sem hann samdi fyrir Apple-þætti og hljómsveitina Inspector Spacetime sem sömdu tónlistina í nýrri auglýsingu fyrir iPhone 17 Pro. „Það er einstök fegurð fólgin í því að þegar kemur að tungumálinu okkar erum við sammála um að hlúa að þessari gersemi svo hún vaxi og dafni með okkur um ókomna tíð. Ég er ákaflega þakklátur þeim listamönnum sem aðstoðuðu okkur í að koma þessari kveðju saman og öllum þeim sem standa vörð um tungumálið okkar dagsdaglega með ýmsum hætti,“ sagði Logi.
Íslensk tunga Apple Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Nýsköpun Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Fleiri fréttir Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira