Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Jakob Bjarnar skrifar 27. apríl 2026 14:37 Gísli Guðni Hall rekur þetta flókna mál fyrir hönd þeirra hjá Eden mining. vísir/vilhelm Eden Mining ehf., sem hefur helst það verkefni með höndum að vera milliliður fyrir Sjöunda dags aðventista við námugröft, vill ekki að mál sem nokkrir aðventistar höfðuðu á hendur fyrirtækinu rati fyrir dómstóla.
Málið á sér langan aðdraganda og varðar óbeint klofning innan Sjöunda dags aðventista. Upp komu grunsemdir um að samningurinn sem söfnuðurinn hefur gert við Eden mining, sem er í eigu aðventistanna Eiríks Ingvarssonar og Kristins Ólafssonar, væri óhagfelldur söfnuðinum. Safnaðarmeðlimir fá hins vegar ekki að sjá samninginn. Ósáttir aðventistar Vísir ræddi við guðfræðinginn Jón Hjörleif Stefánsson aðventista sem ásamt öðrum safnaðarmeðlimum var ósáttur við meðal annars leyndina sem um samninginn ríkti auk þess sem þau vísuðu í lög sem ríkja um trúarsöfnuðinn að hann standi ekki í ótengdri starfsemi; þeirra er að boða fagnaðarerindið. Aðventistar eiga verulegt landsvæði sem liggur í Þrengslunum og þar hefur staðið yfir námugröftur á vegum Eden Minging, tekin hefur verið væn skák úr Litla-Sandfelli. „Ég er í hópi 21 safnaðarmeðlims sem hefur lögsótt samtakastjórn Kirkju sjöunda dags aðventista fyrir brot á 18. grein samþykkta trúfélagsins,“ segir Jón Hjörleifur Stefánsson guðfræðingur í frétt sem Vísir birti snemma í nóvember 2023 og þar er málið rakið að hluta. Stjórn Aðventista vill hins vegar ekkert af málinu vita. Málið hefur flækst um í dómkerfinu um nokkurt skeið. Félagsmenn höfðuðu mál og kröfðust ógildingar samnings sem stjórn kirkjunnar gerði við leyfisbeiðanda um einkarétt þess síðarnefnda til nýtingar jarðefnanáma á landi í eigu kirkjunnar. Enn sést ekki til botns í þessu flókna máli Héraðsdómur vildi vísa málinu frá á þeim forsendum að félagsmenn hefðu ekki lögvarða hagsmuni af málsókn sinni. Landsréttur komst hins vegar að því að þar sem almennir félagsmenn kirkjunnar hefðu ekki verið upplýstir um fyrirhugaða samningsgerð við leyfisbeiðanda og samningurinn undirritaður án kynningar eða umræðu innan félagsins hefðu gagnaðilar verið sviptir rétti til ákvörðunartöku í félaginu um efni sem varðaði hagsmuni þeirra. Þessu vilja Eiríkur og Kristinn, eigendur Eden Mining ehf., ekki una og hafa nú höfðað mál á hendur aðventistunum og hafa fengið Gísla Guðna Hall lögmann til að reka málið. Niðurstaða Landsréttar er að þeirra mati röng enda sé hún byggð á 2. mgr. 17. gr. laga nr. 110/2021 um almannaheillafélög sem heimili félagsmönnum, stjórn, einstökum stjórnarmönnum og öðrum sem telji rétt á sér brotinn með ákvörðun félags að höfða mál gegn því til að fá staðfest að hún sé ógild. „Ákvæðið heimili ekki málsókn gegn leyfisbeiðanda enda sé hann viðsemjandi kirkjunnar og stjórn hennar komi fram fyrir hennar hönd og riti firma hennar,“ segir í ákvörðun um áfrýjunar- og kæruleyfi á vef Hæstaréttar. Þannig að enn dregst að menn sjái til botns í þessu flókna máli. Það er nú á leið til Hæstaréttar, það er sá angi málsins sem snýr að því hvort málið er dómtækt eða ekki.
Trúmál Dómsmál Námuvinnsla Ölfus Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira