Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 28. apríl 2026 15:02 Meirihluti framboða á Akureyri og í Fjallabyggð eru með nýja oddvita. Þrir þeirra eru að koma í fyrsta skipti að sveitarstjórnarmálum. Hér má sjá í þau Jóhann K. Jóhannsson sem fer fyrir lista Jafnaðarfólks og óháðra í Fjallabyggð, Tómas Atli Einarsson leiðir lista Sjálfstæðisflokks í sveitarfélaginu í fyrsta skipti. Berglind Ósk Guðmundsdóttir sem leiðir lista Sjálfstæðisflokks á Akureyri, Þórhallur Jónsson oddviti Akureyrarlistans, Sindri Sólveigarsson Kristjánsson sem fer fyrir lista Samfylkingar á Akureyri í fyrsta skipti, Óðinn Svan Óðinsson sem leiðir L-listann á Akureyri og Lovísu Oktovíu Eyvindsdóttur oddvita Viðreisnar á Akureyri. vísir Mikil endurnýjun er á oddvitum framboða á Akureyri og í Fjallabyggð fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar en af ellefu oddvitum í sveitarfélaganna eru sjö nýir. Þrír oddvitar eru enn fremur glænýir í sveitarstjórnarmálum í sveitarfélögunum, oddvitar Viðreisnar og L-listans á Akureyri og oddviti Jafnaðarfólks og óháðra í Fjallabyggð. Aðeins Framsókn, Vinstri græn og Miðflokkurinn eru með sömu oddvita og í síðustu sveitarstjórnarkosningum á Akureyri. H-listinn í Fjallabyggð heldur sig einnig við sama mann í forystusæti og síðast.
Stór hluti framboðslista á Akureyri og í Fjallabyggð býður upp á nýja oddvita fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Af átta framboðum á Akureyri eru fimm með nýja oddvita en Viðreisn og Akureyrarlistinn, klofningsframboð frá Sjálfstæðisflokknum, bjóða nú fram í fyrsta skipti. Í Fjallabyggð eru þrír framboðslistar. Listi Sjálfstæðisflokks með nýjan oddvita, Jafnarfólk og óháðir sem eru einnig með nýjan mann í brúnni en H-listinn er með sama oddvita og í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Fréttastofa hitti alla oddvita framboða á Akureyri og í Fjallabyggð og ræddi við þá um áherslur og ágreining í þættinum Íslandi í dag sem má nálgast hér að neðan. Fimm af átta oddvitum nýir á Akureyri Í þættinum kemur fram að á Akureyri eru tveir oddvitar að taka þátt í sveitarstjórnarkosningum í fyrsta skipti. Óðinn Svan Óðinsson fyrrverandi fjölmiðlamaður sem fer fyrir L-listanum, sem hefur verið í meirihluta í bæjarstjórn Akureyrarbæjar síðustu sextán ár og Lovísa Oktavía Eyvindsdóttir kennari sem leiðir lista Viðreisnar sem nú býður fram í fyrsta skipti í sveitarfélaginu og í Múlaþingi. Aðrir nýir oddvitar á Akureyri eru þau Berglind Ósk Guðmundsdóttir sem fer fyrir lista Sjálfstæðisflokksins en hún var þingmaður Sjálfstæðisflokksins á síðasta kjörtímabili. Sindri Sólveigarsson Kristjánsson fer fyrir lista Samfylkingar en hann hefur verið varabæjarfulltrúi síðustu ár og gegnt stöðu skrifstofustjóra hjá Háskólanum á Akureyri. Þá er Þórhallur Jónsson nýr oddviti Akureyrarlistans. Hann var varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og var í þriðja sæti á lista flokksins í síðustu sveitarstjórnarkosningum en stofnaði nýja framboðið í janúar vegna óánægju með flokkinn. Oddvitar annarra framboða í bænum voru það einnig í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Þetta eru þau Hlynur Jóhannsson oddviti Miðflokksins sem nú er í meirihluta ásamt Sjálfstæðisflokki og L-flokki, Sunna Hlín Jóhannsdóttir oddviti Framsóknarflokksins og bæjarfulltrúi og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir oddviti Vinstri grænna og bæjarfulltrúi. Tveir af þremur nýir í Fjallabyggð Í Fjallabyggð sem samanstendur af Siglufirði og Ólafsfirði eru sömu stjórnmálaöfl í boði og í síðustu sveitarstjórnarkosningum eða Sjálfstæðisflokkur og Jafnaðarfólk og óháðir sem eru í meirihluta í bæjarstjórn og H-listinn sem er í minnihluta. Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar er oddviti Jafnaðarfólks og óháðra og býður sig nú fram í fyrsta skipti. Hann segist fyrst og fremst tilheyra óháðum í því stjórnmálaafli. Tómas Atli Einarsson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í fyrsta skipti en hann hefur verið í bæjarstjórn. Hann segir hlutverkið nú skemmtilega áskorun. Helgi Jóhannsson leiðir lista H-listans í Fjallabyggð líkt og í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Hann segist m.a. leggja áherslu á innviðamál eins og öruggt kalt vatn.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akureyri Fjallabyggð Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Samfylkingin Vinstri græn Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Sjá meira