Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Eiður Þór Árnason skrifar 29. apríl 2026 17:27 Tveir mannanna eru starfsmenn Eimskips. vísir/Vilhelm Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem snýr að innflutningi á rúmlega fjórtán lítrum af amfetamínbasa, að sögn lögreglu. Áður kom fram að þrír þeirra hafi verið handteknir í viðamiklum aðgerðum um miðjan apríl í tengslum við meintan innflutning með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips.
Sá fjórði var handtekinn í síðustu viku. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að gæsluvarðhald yfir þeim síðastnefnda hafi verið framlengt til 5. maí á grundvelli rannsóknarhagsmuna og hið sama gildi um einn af hinum þremur. Hinum tveimur hafi sömuleiðis verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi en nú á grundvelli almannahagsmuna til 25. maí. Fjórmenningarnir eru sagðir vera íslenskir og á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri. Lögðu hald á efnin um borð í skipinu Fram hefur komið að tveir mannanna séu starfsmenn Eimskips og ekki áður komið við sögu lögreglu. Alls voru sex handteknir í aðgerðum lögreglu og Tollgæslu um miðjan mánuðinn en þrír síðar látnir lausir. Lögregla lagði hald á amfetamínbasann um borð í gámaflutningaskipi Eimskips í aðgerðum 13. apríl. Amfetamínbasi er yfirleitt notaður til að framleiða amfetamín en ekki er hægt að áætla nákvæmlega hversu miklu magni fjórtán lítrar myndu skila án þess að vita styrkleika efnisins. Í Saltdreifaramálinu taldi lögregla að 40 lítrar af amfetamínbasa gætu skilað 170 kílóum til dreifingar. Talið er að haldlagning af þessari stærðargráðu muni hafa töluverð áhrif á fíkniefnamarkaðinn. Fréttin hefur verið uppfærð.
Eimskip Fíkniefnasmygl með Dettifossi Smygl Lögreglumál Fíkniefnabrot Tengdar fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í rannsókn lögreglu á innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, hefur verið framlengt. Einn þeirra sætir varðhaldi í tvær vikur til viðbótar en hinir tveir, sem eru starfsmenn Eimskips, í eina viku hvor. 21. apríl 2026 15:24 Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Stórfellt smyglmál um borð í Dettifossi er talið geta haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi, að sögn lögreglu. Lagt var hald á rúmlega 14 lítra af amfetamínbasa og þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar á meðal tveir starfsmenn Eimskips sem hafa ekki áður komið við sögu lögreglu. 16. apríl 2026 18:32 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Sjá meira
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í rannsókn lögreglu á innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, hefur verið framlengt. Einn þeirra sætir varðhaldi í tvær vikur til viðbótar en hinir tveir, sem eru starfsmenn Eimskips, í eina viku hvor. 21. apríl 2026 15:24
Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Stórfellt smyglmál um borð í Dettifossi er talið geta haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi, að sögn lögreglu. Lagt var hald á rúmlega 14 lítra af amfetamínbasa og þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar á meðal tveir starfsmenn Eimskips sem hafa ekki áður komið við sögu lögreglu. 16. apríl 2026 18:32