Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Kristján Már Unnarsson skrifar 30. apríl 2026 11:13 Hildigunnur H. H. Thorsteinsson er veðurstofustjóri. Sigurjón Ólason Svæðið sem áformað hefur verið undir flugvöll í Hvassahrauni flokkast í nýrri skýrslu Veðurstofunnar undir mesta áhættusvæði hraunflæðis á Reykjanesskaga. Jafnframt fellur það innan svæða með líkur á gosopnun.
Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar en rannsókn á Hvassahrauni sem framtíðarflugvallarstæði hófst fyrir alvöru árið 2019 með samkomulagi ríkis og borgar. Flugvallarsamkomulagið handsalað í nóvember 2019. Það gerði ráð fyrir því að rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar skyldi ekki raskað á meðan nýtt flugvallarstæði í Hvassahrauni væri kannað.Skjáskot/Stöð 2 Ýmsar útfærslur af flugvelli hafa verið teiknaðar í gegnum tíðina, allt frá innanlandsvelli upp í stóran millilandavöll. Það var svo haustið 2024 sem Svandís Svavarsdóttir, þáverandi innviðaráðherra, og Einar Þorsteinsson, þáverandi borgarstjóri, kynntu þá niðurstöðu starfshóps að svæðið hentaði veðurfarslega og að hætta vegna hraunflæðis væri talin lítil. Bæði Svandís og Einar sögðust hallast að því að halda ætti rannsóknum á Hvassahrauni áfram. Svandís Svavarsdóttir, þáverandi innviðaráðherra, kynnti skýrslu starfshóps um rannsóknir á gerð flugvallar í Hvassahrauni þann 1. október 2024Vilhelm Gunnarssson Í skýrslu Veðurstofunnar, sem fylgdi með Hvassahraunsskýrslunni, voru samt taldar líkur á hraunrennsli inn á hið afmarkaða flugvallarstæði. Þær voru þó sagðar litlar, einkum ef lítill völlur yrði gerður. Sviðsmynd úr Hvassahraunsskýrslunni, sem kynnt var haustið 2024, sýnir líkur á hraunrennsli inn á flugvallarsvæði í Hvassahrauni, verði eldgos norðarlega í Krýsuvíkurkerfinu.Grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Í síðustu viku kom ný og ítarlegri skýrsla frá Veðurstofunni um eldgosavá á Reykjanesskaga. Þótt Hvassahraun sé ekki sérstaklega tekið fyrir sést engu að síður á kortum að dekkstu litirnir, sem tákna mestu líkurnar á hraunflæði miðað við meðalstórt hraun, ná inn á það svæði sem afmarkað hefur verið undir flugvöll. Afmarkað flugvallarstæði í Hvassahrauni fyrir lítinn flugvöll og stóran flugvöll teiknað inn á nýtt kort Veðurstofunnar yfir líkur á hraunflæði miðað við meðalstór hraun. Fjólublái liturinn táknar miklar líkur á hraunflæði. Dökkblái liturinn táknar mjög miklar líkur.Veðurstofan/Hjalti Freyr Ragnarsson Einnig sést á korti yfir líkur á gosupptökum, táknaðar með mismunandi grænum lit, að eldgos er talið geta opnast innan svæðisins, þótt þær líkur séu metnar litlar. Afmarkað flugvallarstæði sett saman inn á mat Veðurstofunnar um líkur á gosupptökum. Líkurnar eru meiri eftir því sem liturinn verður dekkri.Hjalti Freyr Ragnarsson/Veðurstofan Við spurðum Hildigunni H. H. Thorsteinsson veðurstofustjóra um Hvassahraun í síðustu viku. -Segið þið eitthvað um það hvort það eigi að reisa flugvöll í Hvassahrauni? „Við segjum ekkert um hvað eigi að gera. Okkar hlutverk er að benda á hættuna. Til þess að það sé hægt að taka nákvæmlega svona umræðu,“ svaraði Hildigunnur hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Hvassahraunsstarfshópurinn lauk störfum eftir skýrslukynninguna fyrir einu og hálfu ári. Ein hugmynd að legu flugbrauta í Hvassahrauni.skjáskot/Sýn Síðan gerðist það að í innviðaráðuneytið settist Eyjólfur Ármannsson sem lýsti því yfir við kynningu samgönguáætlunar fyrir jól að Reykjavíkurflugvöllur yrði festur í sessi og flugstöð reist. Við sama tilefni lýsti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra því yfir að ekki mætti láta flugvöllinn grotna niður á meðan aðrir kostir væru ekki í stöðunni. Miðað við stefnu borgarstjórnar Reykjavíkur þarf flugstarfsemin í Vatnsmýri að vera komin á nýjan stað eftir sex ár því gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir að Reykjavíkurflugvelli verði lokað árið 2032.
Fréttir af flugi Eldgos á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Samgöngur Samgönguáætlun Reykjavíkurflugvöllur Borgarstjórn Skipulag Vogar Hafnarfjörður Tengdar fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. 21. apríl 2026 22:10 Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20 Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir Samgönguáætlun ganga í berhögg við samninga Reykjavíkurborgar og stjórnvalda um að finna Reykjavíkurflugvelli nýjan stað. Borgin ætli enn að færa æfingaflug, einkaflug og þyrluflug úr Vatnsmýri en nú stendur til að byggja nýja flugstöð á vellinum. 7. desember 2025 07:07 Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga vill að við gerð svæðisskipulags Suðurnesja fyrir tímabilið 2024 til 2040 verði tekið jákvætt í tillögu starfshóps innviðaráðuneytis um að svæði í Hvassahrauni verði tekið frá undir framtíðarflugvallarstæði. Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs síðastliðinn miðvikudag. 8. júlí 2025 11:22 Kvikugangur talinn ná langleiðina að flugvallarstæði Hvassahrauns Vísindamenn Veðurstofunnar áætla að kvikugangurinn sem myndaðist í gær sé hátt í tuttugu kílómetra langur. Þeir telja enn möguleika á nýju gosi á norðausturhluta kvikugangsins en taka þó fram að það sé að verða ólíklegra með tímanum. 2. apríl 2025 21:43 Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Innviðaráðherra og borgarstjóri hallast að því að haldið verði áfram að undirbúa flugvöll í Hvassahrauni, eftir að starfshópur komst að þeirri niðurstöðu að svæðið hentaði veðurfarslega og að hætta vegna hraunflæðis væri afar lítil. 1. október 2024 20:20 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira
Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. 21. apríl 2026 22:10
Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20
Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir Samgönguáætlun ganga í berhögg við samninga Reykjavíkurborgar og stjórnvalda um að finna Reykjavíkurflugvelli nýjan stað. Borgin ætli enn að færa æfingaflug, einkaflug og þyrluflug úr Vatnsmýri en nú stendur til að byggja nýja flugstöð á vellinum. 7. desember 2025 07:07
Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga vill að við gerð svæðisskipulags Suðurnesja fyrir tímabilið 2024 til 2040 verði tekið jákvætt í tillögu starfshóps innviðaráðuneytis um að svæði í Hvassahrauni verði tekið frá undir framtíðarflugvallarstæði. Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs síðastliðinn miðvikudag. 8. júlí 2025 11:22
Kvikugangur talinn ná langleiðina að flugvallarstæði Hvassahrauns Vísindamenn Veðurstofunnar áætla að kvikugangurinn sem myndaðist í gær sé hátt í tuttugu kílómetra langur. Þeir telja enn möguleika á nýju gosi á norðausturhluta kvikugangsins en taka þó fram að það sé að verða ólíklegra með tímanum. 2. apríl 2025 21:43
Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Innviðaráðherra og borgarstjóri hallast að því að haldið verði áfram að undirbúa flugvöll í Hvassahrauni, eftir að starfshópur komst að þeirri niðurstöðu að svæðið hentaði veðurfarslega og að hætta vegna hraunflæðis væri afar lítil. 1. október 2024 20:20