Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 3. maí 2026 20:00 Klara Rún Ragnarsdóttir er dagskrárstjóra Hönnunarmars. vísir/aðsend Yfir hundrað og fimmtíu viðburðir eru á Hönnunarmars sem hefst á miðvikudaginn. Hátíðin hefur sjaldan verið umfangsmeiri og gefst fólki meðal annars tækifæri til að skoða byggingar og rými sem alla jafnan eru ekki opin almenningi.
Hátíðin stendur yfir dagana sjötta til tíunda maí en um er að ræða árlegan viðburð þar sem tilgangurinn er að vekja athygli á íslenskri hönnun. Yfir hundrað og fimmtíu viðburðir eru á hátíðinni í ár sem endurspeglar fjölbreytnina í íslenskri hönnun að sögn Klöru Rúnar Ragnarsdóttur, dagskrárstjóra Hönnunarmars. Hún segir meðal annars spennandi dagskrá í kringum arkitektúr á hátíðinni en boðið verður upp á leiðsagnir um rými sem almenningur hefur alla jafnan ekki aðgang að. „Eins og til dæmis verður í boði að fara í leiðsögn um nýja Landspítalann. Hann er enn í byggingu en þarna ætla arkitektarnir að bjóða fólki að skoða.“ Eins verður opið hús hjá Basalt arkitektum, sem hafa hannað nokkur vinsæl baðlón. Þá taka fjölmargir fatahönnuðir þátt í ár og kynna nýjar línur. „Það verður hægt að bóka sér kríu með dúnsængum eftir Studio Erindreka á Hótel holti. Það verður hægt að fara í sundlaugapartí með Salún í Vesturbæjarlaug, sjá sundbol kynntan með dansverki í Nauthólsvík. Svo eru nokkrir viðburðir þar sem hönnuðir og veitingastaðir vinna saman og bjóða upp á upplifanir. Til dæmis á Óx, Skreið og á Plöntunni í Norræna húsinu.“ Þá hvetur hún fjölskyldufólk til að gera sér ferð í Elliðaárstöð næsta sunnudag þar sem handhafar hönnunarverðlauna Íslands verða með viðburð. Líkt og áður segir hefst hátíðin næsta miðvikudag með Design Talks sem er alþjóðleg hönnunarráðstefna í Hörpu. Klara hvetur fólk til að sækja ráðstefnuna enda sé hún ekki einungis fyrir fagfólk heldur alla. „Ég mæli með að tékka á Tix strax vegna þess að miðarnir fara mjög hratt á þetta.“ Allar upplýsingar um sýningar og viðburðina er að finna á heimasíðunni en frítt er inn á allar sýningar hátíðarinnar.
HönnunarMars Tíska og hönnun Nýsköpun Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira