„Ég þarf meira frá mínum reynslumestu mönnum en þetta“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 2. maí 2026 17:12 Magnús Stefánsson vill meira framlag frá ákveðnum leikmönnum. „Við köstum þessu frá okkur,“ sagði Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, súr og svekktur eftir tap í fyrsta leik um Íslandsmeistaratitilinn gegn Val. Lokatölur 39-33, en gestirnir frá Eyjum komust fimm mörkum yfir snemma í síðari hálfleik og því um ellefu marka sveiflu að ræða á 25 mínútna kafla.
Magnús vill meira frá sínu reynslumestu leikmönnum heldur en hann fékk í dag og þá sérstaklega á þessum kafla þegar leikurinn snerist Val í vil. „Við erum með leikinn í okkar höndum, við erum með þær í köðlunum, akkúrat sem við viljum. Svo köstum við þessu bara frá okkur. Tökum óskynsamlegar ákvarðanir, erum að kasta boltanum út af og í hendurnar á þeim. Ég þarf meira frá mínum reynslumestu mönnum heldur en þetta.“ Aðspurður hvaða leikmenn væri um að ræða og hvað það væri sem fór úrskeiðis, þá hafði Magnús þetta að segja. „Ég er að tala um þessa reynslumeiri menn, ég er að tala um Söndru, Birnu Berg og við erum með Britney. Við erum að gera okkur sekar um að brjóta í tvær mínútur þegar þær eru komnar í gegn í staðinn fyrir að halda okkur bara inn á vellinum og hleypa þeim í gegn, þetta er hvort eð er dauðadæmt. Sóknarlega erum við að kasta boltanum frá okkur og við erum bara ekki nógu skynsamar á þessum kafla.“ Þess má geta að Sandra Erlingsdóttir endaði með 14 mörk úr 18 skotum í leiknum, Birna Berg endaði með fjögur mörk úr ellefu skotum og Britney var með eitt mark og tvær brottvísanir, þar af var síðari þeirra afar klaufaleg. Magnús segir að það hafi vantað upp á ákveðin klókindi í leik sinna leikmanna. „Þú ert með svona leik og þá þarftu bara ákveðin klókindi til að klára og þetta var þannig leikur að eina sem okkur vantaði voru klókindi til að klára. Auðvitað er Hafdís frábær í markinu og ver þessa bolta, en á sama tíma getur maður sagt að við þurfum bara að vanda okkur betur í slúttunum þegar á hólminn er komið.“ Að lokum var Magnús spurður út í næsta leik einvígisins og hvort samgöngur gætu haft áhrif, enda Herjólfur í brennidepli í hverjum fréttatímanum á fætur öðrum um þessar mundir. Var Magnús beittur í svörum. „Samgöngur hafa engin áhrif á þann leik, þær geta bara komið sér yfir eins og við degi fyrir leik. Það vorkennir þeim enginn með það. Þetta er bara lið sem við eigum að vinna, við erum bara betri en þetta Valslið og eigum bara að vinna þær og við sýndum það í dag að þetta verður hörku helvítis einvígi. Við tökum þetta,“ sagði Magnús að lokum.
ÍBV Olís-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira