Vopnahléið hangir á bláþræði Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2026 07:56 F-35B herþota á þilfari flugmóðurskipsins USS Tripoli sem er í Mið-Austurlöndum og tekur þátt í hernaði gegn Íran. Sjóher Bandaríkjanna Vopnahléið í Mið-Austurlöndum er talið hanga á bláþræði eftir gærdaginn. Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa orðið fyrir árásum frá Íran og kviknaði eldur í stærstu olíugeymslustöð landsins, vegna þeirra. Þá segjast Bandaríkjamenn hafa grandað sex bátum íranska byltingarvarðarins og að skotið hafi verið á bandarísk herskip.
Árásirnar á furstadæmin í gær voru þær fyrstu frá því vopnahlé náðist snemma í apríl og segja yfirvöld þar að Íranir hafi notast við skotflaugar og sjálfsprengidróna til árásanna. Yfirvöld í Óman segja tvo hafa særst þar í sprengingu nærri landamærum furstadæmanna en hafa ekki sagt að það hafi gerst í árás frá Íran. Fyrstu árásirnar í gær virðast hafa verið gerðar þegar bandarískum herskipum var siglt gegnum Hormússund. Þá sögðust Íranir hafa skotið eldflaugum á að minnsta kosti eitt bandarískt herskip. Þeir sögðust hafa hæft skipið og þvingað stjórnendur þess til að snúa því við. Þessu höfnuðu Bandaríkjamenn alfarið og stuttu seinna sögðu þeir að tveimur flutningaskipum hefði verið siglt gegnum sundið, með aðstoð áðurnefndra herskipa. Stjórnendur nokkurra flutningaskipta tilkynntu árásir í gær. Íranir hafa lokað Hormússundi frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran fyrir rúmum tveimur mánuðum. Með árásum á flutningaskip og hótunum um árásir hafa siglingar gegnum sundið nánast alfarið verið stöðvaðar en við hefðbundnar kringumstæður fer um fimmtungur af olíu heimsins um sundið, auk annarra mikilvægra afurða og aðfanga. Bresku samtökin, sem vakta skipaflutninga um heiminn, segja að ráðist hafi verið á að minnsta kosti tvö flutningaskip við Hormússund í gær. Eldur kom upp í þriðja skipinu en óljóst er hvort það var vegna árásar. UKMTO DAILY SUMMARY 03 MAY - 04 MAY 2026.Please click here to view UKMTO products⤵️https://t.co/KxMvA6JJjj#MaritimeSecurity #MarSec pic.twitter.com/Yw1c0p8Zqg— UKMTO Operations Centre (@UK_MTO) May 4, 2026 Forsvarsmenn íranska byltingarvarðarins hafa lýst því yfir að ekkert skip megi fara um sundið án samþykkis þeirra, sem hingað til hefur fengist gegn greiðslu. Þá sögðu þeir að tilraunir til að opna sundið með hervaldi séu til jafns við að brjóta gegn vopnahléinu. Sjá einnig: Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Bandaríkjamenn hafa varað stjórnendur flutningafyrirtækja við því að greiða Írönum fyrir leyfi til siglinga um sundið og hafa gefið til kynna að þeim gæti verið refsað með viðskiptaþvingunum, samkvæmt AP fréttaveitunni. Fleiri fóru ekki gegnum sundið Stjórn Írana á Hormússundi veitir þeim mikið vogarafl í viðræðum við Bandaríkjamenn og hefur sömuleiðis aukið þrýstinginn á Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, til að binda enda á átökin vegna hækkandi olíuverðs og annarra vandræða sem lokun sundsins hefur leitt til og mun leiða til víða um heim. Í kjölfar þess lýstu Bandaríkjamenn því yfir að Íran hefði verið sett í herkví og hafa þeir gert Írönum ómögulegt að flytja út eigin olíu. Þannig vilja Bandaríkjamenn þvinga klerkastjórn Íran til að gefa eftir en ríkið hefur lengi glímt við umfangsmikil efnahagsvandræði. Trump lýsti því svo yfir á dögunum að bandaríski herinn myndi aðstoða stjórnendur skipa við að komast gegnum sundið en talið er að þúsundir sjómanna á hundruðum flutningaskipa sitji fastir á Persaflóa. Sjá einnig: Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Bandaríkjamenn hvöttu fleiri stjórnendur skipa til að sigla gegnum sundið í gær en það virðist ekki hafa skilað tilætluðum árangri, samkvæmt frétt Reuters. Forsvarsmenn flutningafyrirtækja segja líklegt að þeir muni bíða eftir formlegum endalokum á átökunum áður en skipunum verði siglt gegnum sundið. Abbas Araqchi, utanríkisráðherra Íran, lýsti því yfir í gær að atburðir dagsins sýndu fram á að ástandið á Persaflóa yrði ekki leyst með hernaði. Viðræður, með aðstoð Pakistana, væru líklegri til árangurs. Events in Hormuz make clear that there's no military solution to a political crisis.As talks are making progress with Pakistan's gracious effort, the U.S. should be wary of being dragged back into quagmire by ill-wishers. So should the UAE.Project Freedom is Project Deadlock.— Seyed Abbas Araghchi (@araghchi) May 4, 2026 Viðræður milli ríkjanna hafa litlum árangri skilað hingað til en tillögur að mögulegum áframhaldandi viðræðum eru til skoðunar bæði í Íran og í Bandaríkjunum. Ráðamenn beggja ríkja hafa sagt að tillögurnar séu ekki líklegar til árangurs, eins og staðan er núna. Brad Copper, aðmíráll og yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, gaf í gær út yfirlýsingu þar sem hann sagði Bandaríkjamenn með yfirhöndina á svæðinu. Þá sagði hann að á meðan Bandaríkjamenn væru að reyna að opna fyrir siglingar flutningaskipa á nýjan leik væru Íranir að gera allt sem þeir gætu til að hrella og ógna stjórnendum flutningaskipa. Remarks to media today from Adm. Brad Cooper, CENTCOM commander, on Project Freedom: pic.twitter.com/kIFFLf2vpd— U.S. Central Command (@CENTCOM) May 4, 2026
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Hernaður Donald Trump Skipaflutningar Bensín og olía Tengdar fréttir Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði. 3. maí 2026 08:27 Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hingað til hafnað miðlunartillögu Írans en í henni fólst að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund og að herkví bandaríska hersins yrði aflétt. 2. maí 2026 19:30 Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Donald Trump segist ekki þurfa leyfi frá Bandaríkjaþingi fyrir stríðsrekstrinum í Íran þar sem honum sé í raun lokið. Hann er ekki ánægður með stöðu mála í samningaviðræðum og segir að Bandaríkjamenn muni ekki fara of snemma frá Íran. 2. maí 2026 13:25 Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Sjá meira
Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði. 3. maí 2026 08:27
Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hingað til hafnað miðlunartillögu Írans en í henni fólst að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund og að herkví bandaríska hersins yrði aflétt. 2. maí 2026 19:30
Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Donald Trump segist ekki þurfa leyfi frá Bandaríkjaþingi fyrir stríðsrekstrinum í Íran þar sem honum sé í raun lokið. Hann er ekki ánægður með stöðu mála í samningaviðræðum og segir að Bandaríkjamenn muni ekki fara of snemma frá Íran. 2. maí 2026 13:25
Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17