Röð áfalla en trúin til staðar: „Ekkert pláss fyrir bull“ Aron Guðmundsson skrifar 6. maí 2026 12:31 Baldur Þór, þjálfari Stjörnunnar, mætir með sitt lið í Síkið í oddaleik gegn Tindastól í undanúrslitum Bónus deildarinnar í kvöld. Vísir / Anton Brink Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari ríkjandi Íslandsmeistara Stjörnunar, segir trúnna enn til staðar innan liðsins gagnvart því að hafa betur gegn Tindastól í oddaleik í undanúrslitum Bónus deildarinnar í kvöld þrátt fyrir að hvert áfallið á fætur öðru hafi dunið á liðinu. „
Bara spenntur fyrir leiknum,“ segir Baldur í samtali við Vísi. „Eins og oddaleikir eru þá er þetta náttúrulega rosa krefjandi. Maður spyr sig oft þegar maður er í þessari úrslitakeppni, hvað maður sé eiginlega að gera? En á sama tíma þarf maður að minna sig á að þetta er gaman og forréttindi að taka þátt í þessu.“ Stjörnumenn urðu hins vegar fyrir enn einu áfallinu í aðdraganda oddaleiksins þegar greint var frá því að Bandaríkjamaðurinn Seth LeDay yrði ekki meira með á tímabilinu eftir að hafa slitið liðbönd í leik fjögur gegn Tindastól. LeDay bætist því á meiðslalistann í Garðabænum ásamt landsliðsmönnunum Ægi Þór Steinarssyni og Orra Gunnarssyni. Hvaða áhrif hefur fjarvera Seth Leday? „Náttúrulega bara ekki góð áhrif. Það segir sig sjálft. Maður getur náttúrulega bara verið lítill í sér og kvartað yfir þessu, að heimurinn sé á móti manni og allt það. En maður verður bara að ýta þessum hugsunum frá sér. Mannskapurinn stígur upp. Það eru allir sem stíga upp, maður kemur í manns stað. Sama gamla tuggan. Það er bara að undirbúa leikinn, leggja sitt besta að mörkum og sjá hvar þú endar.“ „Helvíti þröng staða“ Það eru fáir sem gefa ykkur möguleika í leik kvöldsins án Seth LeDay, Ægis Þórs Steinarssonar og Orra Gunnarssonar. Er möguleikinn til staðar að þið vinnið Tindastól í kvöld og tryggið ykkur sæti í úrslitaeinvíginu? „Já það er alltaf möguleiki. En auðvitað er þetta orðin helvíti þröng staða. Mjög krefjandi. Það þurfa allir að eiga sinn besta leik. Það er bara svoleiðis og ekkert pláss fyrir bull. Menn þurfa að spila yfir getu í einhverjum stöðum og það þarf að vera stemning, sjálfstraust og ákveðni. Ef þú keppir af fullum krafti, nærð að overperforma þá er allt mögulegt í þessari íþrótt.“ Ægir Þór var sárþjáður eftir að hafa olnbogabrotnað í átta liða úrslitunum gegn KR á dögunumVísir/Anton Ekki lent í þessu áður En bara í ljósi þessara áfalla sem hafa dunið á ykkur. Hefur þú þurft að staldra við og hugsa hversu óheppnir þið getið eiginlega verið? „Já auðvitað staldrar maður við og spyr sig hvað sé eiginlega að frétta með þetta. Ég man nú ekki eftir því að hafa þjálfað lið þar sem að svona margir leikmenn hafa lent í meiðslum og verið frá út tímabilið. Að lenda í þremur sama tímabilið er nú bara algjörlega einsdæmi. Auðvitað er heppnin ekki með okkur í þessu en þetta eru íþróttir. Eitt af því er að reyna fara í gegnum hindranir, sýna ekki uppgjöf, keppa harðar þegar að á móti blæs. Það er eitt af því sem íþróttir geta kennt þér. Eitt af því sem maður þarf að tileinka sér ef þú ætlar að keppa í þessu.“ Jákvæð tíðindi bárust þó einnig í aðdraganda leiksins. Serbinn Luka Gasic hefur verið að glíma við magapest en er klár í slaginn í Síkinu í kvöld með Stjörnunni. Luka Gasic í leik með StjörnunniVísir/Ernir Eyjólfsson Trúin enn til staðar Stjarnan hefur að einhverju leiti afsannað hrakspár sem voru á lofti fyrir einvígið gegn Tindastól eftir að liðið hafði misst Ægi Þór og Orra í meiðsli. Með nýjasta áfallinu spyr maður sig hvort trúin á verkefninu sé enn til staðar. „Það er klárlega enn þá trú í liðinu. Við erum enn með fullt af gæðaleikmönnum sem geta spila á hæsta gæðastigi. Við höfum trú á verkefninu og ætlum að leggja allt í þetta.“ Oddaleikur Tindastóls og Stjörnunnar hefst klukkan korter yfir sex í Síkinu á Sauðárkróki og verður þar leikið til þrautar um sæti í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 2.
Bónus-deild karla Stjarnan Tindastóll Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira