Ted Turner er látinn Samúel Karl Ólason skrifar 6. maí 2026 14:45 Ted Turner greindist fyrir nokkrum árum með heilabilun. Hann var 87 ára gamall þegar hann lést í morgun. AP/Kamil Zihnioglu Ted Turner, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa stofnað bandarísku sjónvarpsstöðina CNN og haft þannig gífurleg áhrif á þróun fjölmiðla í heiminum, er látinn. Hann var 87 ára gamall en árið 2018 greindi hann frá því að hann hefði greinst með Lewy body heilabilun.
Hann er sagður hafa dáið á heimili sínu í morgun, umkringdur fjölskyldumeðlimum sínum. Turner skilur eftir sig fimm börn, fjórtán barnabörn og tvö barnabarnabörn. Turner fæddist í Ohio í Bandaríkjunum en hann byggði upp fjölmiðlaveldi sem fól meðal annars í sér að stofna sjónvarpsstöðina CNN árið 1980. Það var fyrsta fréttastöðin sem sagði fréttir allan sólarhringinn. Eins og fram kemur í frétt CNN um andlát hans segir að árið 1991 hafi Time valið Turner sem mann ársins vegna þeirra áhrifa sem hann hafði haft á fjölmiðla vestanhafs og víðar. Árið 1996 sameinaðist fyrirtæki hans við Time Warner og svo árið 2001 sameinaðist það fyrirtæki við AOL. Turner hætti störfum hjá fyrirtækinu árið 2003 og hætti í stjórn þess árið 2005. Fyrirtækið er nú í eigu Warner Bros. Discovery. Hann var einnig mikill mannvinur og gaf hann til að mynda Sameinuðu þjóðunum milljarð dala yfir nokkur ár. Þá barðist hann meðal annars fyrir útrýmingu kjarnorkuvopna og ýmis málefni á sviði náttúruverndar. Árið 1989 hóf Ted Turner samband við leikkonuna Jane Fonda og giftu þau sig árið 1991. Þau skildu þó eftir tíu ára hjónaband. Fonda sagðist seinna meir hafa skilið við Turner þar sem hún hafi verið orðin þreytt á endalausum ferðalögum. „Ég myndi aldrei elska neinn eins og ég elskaði hann,“ sagði hún. Hún var þá að nálgast sextugt og vildi breyta til. Hún var orðin þreytt á því að vera svo mikið á ferðinni og sagðist ekki vilja sjá eftir því að hafa ekki gert hluti sem hana langaði að gera og þurfti að gera fyrir sjálfa sig. Þau voru þó áfram miklir vinir. Turner og Fonda árið 2017.Getty/Rick Diamond Skilnaðurinn hafði mikil áhrif á Turner en það var um svipað leyti sem það byrjaði að fjara undan fjölmiðlaveldi hans. Hann missti á endanum Turner Broadcasting, CNN, Atlanta Braves og Atlanta Hawks. Hann er talinn hafa tapað sjö milljörðum dala á einungis þremur árum. „Ég missti Jane. Ég missti starfið mitt hér. Ég missti auðinn, mest allan. Ég á milljarð eða tvo eftir og maður getur lifað á því ef maður passar sig,“ sagði Warner í viðtali á CNN árið 2012.
Bandaríkin Andlát Fjölmiðlar Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira