Körfubolti

Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu með­ferð sem ég hef séð“

Sindri Sverrisson skrifar
LeBron James og félagar eru lentir 2-0 undir í einvíginu við Oklahoma City Thunder.
LeBron James og félagar eru lentir 2-0 undir í einvíginu við Oklahoma City Thunder. Getty/Joshua Gateley

LA Lakers eru komnir í erfiða stöðu í einvígi sínu við meistara Oklahoma City Thunder, í undanúrslitum vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta, og eru hundóánægðir með dómgæsluna.

Oklahoma-liðið fagnaði 125-107 sigri í nótt og komst í 2-0 í einvíginu, og virðist hafa gott tak á Lakers. Detroit Pistons komust sömuleiðis í 2-0 gegn Cleveland Cavaliers með 107-97 sigri.

Eftir leikinn í nótt hópuðust leikmenn Lakers að dómurunum og Austin Reaves virtist mikið niðri fyrir þegar hann talaði máli þeirra.

JJ Redick, þjálfari Lakers, tjáði sig svo um dómgæsluna á blaðamannafundi eftir leik.

„Ég sagði í kaldhæðni um daginn að þeir væru liðið sem truflaði mest án þess að brjóta,“ sagði Redick. „Ég meina, þeir eru með nokkra leikmenn sem brjóta í hverri einustu sókn. Það er nógu erfitt að spila á móti þeim. Það er nógu erfitt að spila á móti þeim, það verður að vera hægt að dæma á þá ef þeir brjóta, og þeir brjóta,“ sagði Redick.

Redick fékk tæknivillu í fyrsta leikhluta fyrir að öskra á dómarann Ben Taylor og hann var sérstaklega óánægður með þá meðhöndlun sem LeBron James hefur fengið hjá dórmurunum. James fékk að meðaltali 5,3 vítaskot í leik í deildarkeppninni en hefur aðeins fengið fimm vítaskot samanlagt í leikjunum tveimur við Oklahoma.

James laminn sundur og saman

„LeBron fær verstu meðferð hjá dómurum af öllum stjörnuleikmönnum sem ég hef séð,“ sagði Redick. „Ég meina, ég er búinn að vera með honum í tvö ár núna. Minni leikmenn, þar sem þeir geta verið með leikaraskap, fá yfirleitt fleiri villur dæmdar á sig en stærri leikmenn sem eru byggðir eins og LeBron eiga erfiðara með það. Það er barið á honum. Það var barið á honum aftur í kvöld, mikið,“ sagði Redick og hélt áfram:

„Og það er ekkert nýtt. Það er ekki bundið við þetta dómarateymi eða þessa einvígisseríu. Það er brotið mikið á honum og það er ekki [dæmt]. Þessi maður er sleginn í höfuðið oftar en nokkur annar leikmaður sem ég hef séð þegar hann keyrir að körfunni, og það er sjaldan dæmt.“

Chet Holmgren og Shai Gilgeous-Alexander skoruðu 22 stig hvor fyrir Thunder en James var með 23 fyrir Lakers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×