Á þriðja hundrað manns æfði viðbrögð við flugslysi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. maí 2026 10:55 250 manns tóku þátt. Isavia Um 250 manns tóku þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia á Akureyrarflugvelli í gær. Líkt var eftir því að farþegaþota hefði farist.
Byggt var á flugslysaáætlun Akureyrarflugvallar og þátttakendur í æfingunni komu frá öllum viðbragðsaðilum á nærliggjandi svæðum. Starfsfólk Isavia Innanlandsflugvalla ásamt flugrekstrar- og flugþjónustuaðilum æfði viðbúnað sinn á Akureyrarflugvelli. Það gerðu einnig fulltrúar Almannavarna, Landhelgisgæslunnar, Landspítalans, lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita, Rauða krossins og Sjúkrahússins á Akureyri. Þá tók fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa einnig þátt. Æft var viðbragð við því að farþegaþota hrapaði. Björgunar- og slökkviaðgerðir voru æfðar sem og greining og aðhlynning slasaðra á vettvangi og á söfnunarsvæði slasaðra á flugvellinum. Áhersla var lögð á flutning slasaðs fólks, boðunarkerfi, stjórnun á vettvangi, samhæfingu og fjarskipti svo eitthvað sé nefnt. Eitthvað af bílhræjum fóru illa úr flugslysinu.Isavia „Flugslysaæfingar eins og þessi hjálpa okkur að efla viðbúnað við flugslysum og hverjum öðrum alvarlegum slysum sem geta orðið í nærsamfélagi flugvalla,“ er haft eftir Elvu Tryggvadóttur í tilkynningu en hún er verkefnastjóri neyðarviðbúnaðar hjá Isavia og æfingastjóri. „Isavia og Almannavarnir leggja áherslu á að þessar æfingar líki sem mest eftir þeim aðstæðum sem geta skapast í slysum af þessu tagi. Viðbragðsaðilar fá þannig að reyna sig í því sem mætti teljast nálægt þeim aðstæðum sem geta skapast þegar hættu ber að höndum. Þetta er afskaplega gagnlegt fyrir okkur, Almannavarnir og ekki hvað síst fyrir þá öflugu viðbragðsaðila og sjálfboðaliða sem tóku þátt í æfingunni.“ Um 50 sjálfboðaliðar tóku þátt í æfingunni á Akureyrarflugvelli og léku slasaða farþega og áhöfn á vettvangi. Æfingin á Akureyri er sú fyrsta af þremur sem haldnar eru á þessu ári. Næsta æfing verður á Ísafjarðarflugvelli 30. maí næstkomandi. Sú þriðja og síðasta verður haldin á Vopnafjarðarflugvelli 4. júní.
Isavia Flug Samgönguslys Akureyri Akureyrarflugvöllur Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira