Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Agnar Már Másson skrifar 10. maí 2026 17:52 „Strax í kvöld mun ég gefa út tilskipun sem gerir kleift að koma á viðeigandi einangrunarráðstöfunum fyrir þá sem hafa verið í snertingu við smitaða og til verndar almenningi,“ segir forsætisráðherrann. Getty Einn af þeim fimm frönsku ríkisborgurum sem fluttir voru af MV Hondius, farþegaskipinu þar sem hantaveirusmit braust út, er sagður sýna sjúkdómseinkenni. Farþegarnir fimm hafa verið skikkaðir í einangrun.
Þrír hafa látist vegna hantaveiru um borð í hollenska skemmtiferðaskipinu Hondius sem er nú komið til Tenerife. Vinna stendur nú yfir að koma farþegum sem eru einkennalausir til sinna heimalanda. Farþegar og áhöfn, alls um hundrað og fimmtíu manns, hafa verið skimaðir af spænskum heilbrigðisyfirvöldum til að tryggja að þeir séu áfram einkennalausir. Farþegar af skemmtiferðaskipinu voru fluttir með rútu frá höfninni.AP Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, greinir frá þessu á X, en þar kemur fram að fimm Frakkar hafi verið fluttir með flugvél heim til Frakklands í kjölfar þess sem skipið lagði að höfn við kanaríeyjunnar Tenerífe. Einn þeirra sýndi einkenni í flugvélinni á leiðinni heim, að sögn Lecornu. Sjá einnig: Hantaveiran HV Hondius út af strönd Tenerífe.Getty „Þess vegna voru þessir fimm farþegar settir umsvifalaust í stranga einangrun þar til annað verður ákveðið,“ skrifar Lecornu, sem segir að þeir muni hljóta læknisaðstoð og gangast undir smitpróf og heilsufarsskoðun. „Strax í kvöld mun ég gefa út tilskipun sem gerir kleift að koma á viðeigandi einangrunarráðstöfunum fyrir þá sem hafa verið í snertingu við smitaða og til verndar almenningi,“ skrifar franski forsætisráðherrann enn fremur og bætir við að heilbrigðisráðherra landsins, Stéphanie Rist, muni tjá sig um málið í kvöld. Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands.Vísir/EPA Svo vitað sé hafa engir Íslendingar komist í snertingu við veiruna. Embætti Landlæknis á Íslandi birti á dögunum tilkynningu á vef sínum með upplýsingum um veiruna. Þar er útskýrt að hantaveirur séu hópur veira sem berast með nagdýrum. Fólk smitist yfirleitt eftir nánd við sýkt nagdýr eða þvag, saur eða munnvatn þeirra og fæstar hantaveirur berist milli manna. Andesveira sé þó mikilvæg undantekning. Farþegi sýnir þumalinn er honum er ekið fram hjá ljósmyndurum AP.AP
Frakkland Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Spánn Kanaríeyjar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju Sjúkraliðar úr breska hernum stukku úr flugvél með fallhlífum yfir eyjunni Tristan da Cunha fyrr í dag til að koma breskum manni sem smitaðist af hantaveiru til hjálpar. Eyjan er ein sú afskekktasta og er mitt á milli Argentínu og Suður-Afríku á miðju Atlantshafi. 10. maí 2026 14:15 „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ „Við höfum engar áhyggjur af þessu fyrir okkur. Því að þetta er það öruggt með skipið. Lífið heldur bara áfram sinn vanagang.“ 10. maí 2026 13:12 Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Sjá meira
Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju Sjúkraliðar úr breska hernum stukku úr flugvél með fallhlífum yfir eyjunni Tristan da Cunha fyrr í dag til að koma breskum manni sem smitaðist af hantaveiru til hjálpar. Eyjan er ein sú afskekktasta og er mitt á milli Argentínu og Suður-Afríku á miðju Atlantshafi. 10. maí 2026 14:15
„Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ „Við höfum engar áhyggjur af þessu fyrir okkur. Því að þetta er það öruggt með skipið. Lífið heldur bara áfram sinn vanagang.“ 10. maí 2026 13:12