Messan um stóra dóminn: „Þetta er bara rétt“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2026 07:02 David Raya biður um aukaspyrnu eftir að Pablo braut á honum. getty/Marc Atkins Markið sem var dæmt af West Ham United í leiknum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni var að sjálfsögðu til umræðu í Sunnudagsmessunni. Að mati sérfræðinga hennar komst dómari leiksins að réttri niðurstöðu.
Í uppbótartíma í leik West Ham og Arsenal á Lundúnaleikvanginum á sunnudaginn fengu Hamrarnir hornspyrnu. Boltinn barst til Callums Wilson sem þrumaði honum inn og hélt að hann hefði jafnað í 1-1. Arsenal-menn mótmæltu strax harðlega og við tók reikistefna, hvort markið yrði dæmt gilt eða ekki. Eftir að hafa farið út að hliðarlínu til að horfa á atvikið dæmdi Chris Kavanagh markið á endanum af vegna brots Pablos á David Raya, markverði Arsenal. Aron Jóhannsson telur að Kavanagh hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann dæmdi markið af. „Jájá, maður er búinn að sjá þetta þegar þetta er svona hægt. Að sama skapi eru allir að toga og ýta en hann heldur ofarlega í höndina á Raya og ef hann hefði ekki gert það hefði Raya haldið uppteknum hætti, gripið boltann og þetta hefði ekki verið neitt vesen,“ sagði Aron. Klippa: Messan - umræða um markið sem var dæmt af West Ham „Það hefði verið gaman að fá smá alvöru spennu í þetta en þetta er hárrétt. Vel gert hjá dómaranum.“ Ásgerður Stefanía Baldursdóttir tók undir með Aroni. „Þetta er bara rétt. En þetta augljósa er svo löngu fallið um sjálft sig í VAR-inu. Hann dæmir mark en þetta er rétt. Ég veit ekki hvort við sjáum þetta í Liverpool-leiknum að það er verið að ýta og toga endalaust en síðan eru svona augnablik sem er dæmt á. En þetta er bara rétt, því miður, eins og Aron sagði, því það hefði verið gaman að fá aðeins meira spennandi leiki í síðustu tveimur umferðunum,“ sagði Adda. Ríkharð Óskar Guðnason benti á hvernig Declan Rice hélt Konstantinos Mavropanos í umræddri hornspyrnu. „Þú getur tekið svona atvik í hverju einasta horni. Það er alltaf verið að toga og svo eru þessir markmenn líka heilagir. Að því sögðu grípur hann [Pablo] bara í höndina á honum [Raya] og er að toga í hana. Ef hann hefði gripið í hana og sleppt strax væri þetta kannski smá vafaatriði fyrir mér. En hann grípur í höndina á honum, heldur í hann og sleppir ekki,“ sagði Aron. Eftir sigurinn á Lundúnaleikvanginum er Arsenal með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester City getur minnkað forskotið niður í tvö stig með sigri á Crystal Palace annað kvöld. Innslagið úr Messunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn West Ham United Arsenal FC Messan Tengdar fréttir Í fámennan hóp markvarða Spánverjinn David Raya tryggði sér í gær gullhanskann í ensku úrvalsdeildinni er hann hélt hreinu í sigri Arsenal á West Ham. Hann hefur haldið hreinu 18 sinnum í vetur. 11. maí 2026 15:30 Hvar er eiginlega samræmið? Það er búið að rífast mikið um VAR-dóminn umdeilda í leik West Ham og Arsenal í gær og það verður líklega gert næstu vikurnar. 11. maí 2026 14:43 „Arsenal væri aldrei á toppnum ef þetta er brot“ Daninn Peter Schmeichel, fyrrverandi markvörður Manchester United, er ekki hrifinn af því að jöfnunarmark West Ham undir lok leiks við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær, hafi verið dæmt af. 11. maí 2026 11:46 West Ham kvartar til dómaranefndar Forráðamenn West Ham munu hafa samband við dómaranefnd ensku deildanna í ljósi jöfnunarmarks liðsins sem dæmt var af undir lok 1-0 taps fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Markið gæti haft mikið að segja um bæði titilbaráttuna sem og vonir West Ham um að halda sæti liðsins í deildinni. 11. maí 2026 10:15 „Slot og allir leikmennirnir að bíða eftir að tímabilið sé búið“ „Það á allur hópurinn mikið inni,“ sagði Aron Jóhannsson þegar þau Adda Baldursdóttir ræddu um Liverpool og stjórann Arne Slot í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport. 10. maí 2026 23:29 „Mikið kaos en ekki spurning að þarna var brot“ „Ég á aldrei eftir að gleyma þessum degi og þessari tölu,“ sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir 1-0 sigurinn gegn West Ham í dag sem færði liðið afar nálægt langþráðum Englandsmeistaratitli. 10. maí 2026 19:15 Allt brjálað í lokin en titillinn blasir við Skyttunum Arsenal er tveimur sigrum frá því að verða Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár, eftir óhemju dramatískan 1-0 sigur gegn West Ham í Lundúnaslag í dag. 10. maí 2026 17:30 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Sjá meira
Í fámennan hóp markvarða Spánverjinn David Raya tryggði sér í gær gullhanskann í ensku úrvalsdeildinni er hann hélt hreinu í sigri Arsenal á West Ham. Hann hefur haldið hreinu 18 sinnum í vetur. 11. maí 2026 15:30
Hvar er eiginlega samræmið? Það er búið að rífast mikið um VAR-dóminn umdeilda í leik West Ham og Arsenal í gær og það verður líklega gert næstu vikurnar. 11. maí 2026 14:43
„Arsenal væri aldrei á toppnum ef þetta er brot“ Daninn Peter Schmeichel, fyrrverandi markvörður Manchester United, er ekki hrifinn af því að jöfnunarmark West Ham undir lok leiks við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær, hafi verið dæmt af. 11. maí 2026 11:46
West Ham kvartar til dómaranefndar Forráðamenn West Ham munu hafa samband við dómaranefnd ensku deildanna í ljósi jöfnunarmarks liðsins sem dæmt var af undir lok 1-0 taps fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Markið gæti haft mikið að segja um bæði titilbaráttuna sem og vonir West Ham um að halda sæti liðsins í deildinni. 11. maí 2026 10:15
„Slot og allir leikmennirnir að bíða eftir að tímabilið sé búið“ „Það á allur hópurinn mikið inni,“ sagði Aron Jóhannsson þegar þau Adda Baldursdóttir ræddu um Liverpool og stjórann Arne Slot í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport. 10. maí 2026 23:29
„Mikið kaos en ekki spurning að þarna var brot“ „Ég á aldrei eftir að gleyma þessum degi og þessari tölu,“ sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir 1-0 sigurinn gegn West Ham í dag sem færði liðið afar nálægt langþráðum Englandsmeistaratitli. 10. maí 2026 19:15
Allt brjálað í lokin en titillinn blasir við Skyttunum Arsenal er tveimur sigrum frá því að verða Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár, eftir óhemju dramatískan 1-0 sigur gegn West Ham í Lundúnaslag í dag. 10. maí 2026 17:30