Hafa gert leynilegar árásir í Íran Samúel Karl Ólason skrifar 12. maí 2026 11:25 Furstadæmin notast meðal annars við bandarískar F-16 og franskar Mirage herþotur. Þetta er F-16. EPA/ALI HAIDER Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa gert leynilegar árásir á skotmörk í Íran. Sérfræðingar hafa lengi velt vöngum yfir slíkum árásum en þær eru meðal annars sagðar hafa beinst gegn olíuvinnsluinnviðum og vatnseymingarstöð.
Frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í lok febrúar hafa Íranir gert ítrekaðar árásir á furstadæmin. Í mörgum tilfellum hafa þessar árásir beinst að borgaralegum innviðum og olíuvinnslu og hafa árásirnar verið tíðari en Íranir hafa gert á önnur ríki á svæðinu. Ráðamenn ríkja við Persaflóa sögðu margir í upphafi að lofthelgar þeirra yrðu ekki notaðar til árása gegn Íran. Þegar árásirnar hófust gerði klerkastjórnin þó ítrekaðar árásir með skotflaugum og sjálfsprengidrónum á borgir og orkuinnviði nágranna sinna. Markmiðið með þeim árásum var að gera stríðsreksturinn erfiðari fyrir Bandaríkin og Ísrael, bæði efnahagslega og pólitískt séð. Íranir hafa skotið rúmlega 2.800 skotflaugum og drónum að Furstadæmunum. Ekkert ríki hefur orðið fyrir nærri því jafn umfangsmiklum árásum og er Ísrael þar á meðal. Sjá einnig: Furstadæmin yfirgefa OPEC Herafli furstadæmanna er vel vopnum búinn, þó hann sé tiltölulega fámennur, en umræddar árásir hafa, samkvæmt Wall Street Journal, meðal annars beinst að olíuvinnslu Írana á Lavan-eyju í Persaflóa. Sú árás var gerð snemma í apríl, skömmu áður en Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti vopnahléið sem hangir nú á bláþræði. Sjá einnig: Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Þá svaraði klerkastjórnin fyrir sig með árásum á bæði furstadæmin og Kúveit en aldrei var varpað ljósi á hverjir hefðu framkvæmt árásina. Samkvæmt WSJ voru Bandaríkjamenn ekki ósáttir við árásina og tóku þeir þátttöku furstadæmanna fagnandi og í einrúmi voru ráðamenn annarra ríkja við Persaflóa hvattir til að taka einnig þátt í árásunum gegn Íran. Um miðjan mars voru myndir teknar af herþotu yfir Íran sem sérfræðingar töldu hvorki tilheyra Bandaríkjunum né Ísrael og hafa síðan þá verið miklar umræður um þátttöku Furstadæmanna í árásum á Íran. Myndir hafa einnig náðst af frönskum Mirage-herþotum yfir Íran og kínverskum Wing Loong-drónum en það eru hergögn sem Furstadæmin nota. Í mars sögðu ísraelskir miðlar frá því að Furstadæmin hefðu gert árás á vatnseymingarstöð í Íran. Þá urðu ráðamenn í Dubai reiðir yfir því sem þeir kölluðu falsfréttir. Formaður þjóðaröryggisráðs Furstadæmanna skrifaði á samfélagsmiðla að fregnirnar væru rangar. Þegar við gerum eitthvað, höfum við hugrekki til að opinbera það, sagði Rashid Al Nuaimi. Beita sér gegn klerkastjórninni á öðrum sviðum Auk þess að gera árásir á Íran hafa furstadæmin beitt sér gegn Íran innan Sameinuðu þjóðanna, gripið til efnahagslegra aðgerða gegn klerkastjórninni, lokað skólum og klúbbum í Dúbaí sem tengjast klerkastjórninni og neitað Írönum um vegabréfsáritanir, svo eitthvað sé nefnt. WSJ segir þetta hafa komið nokkuð niður á klerkastjórninni, þar sem Furstadæmin hafi lengi verið eins konar lífilína fyrir Írani til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum. Við þessu hefur klerkastjórnin brugðist við með því að saka furstadæmin um að ganga til liðs við Bandaríkin og Ísrael gegn Íran. Sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael sagði í morgun að Ísraelar hefðu sent loftvarnarkerfi og hermenn til að stýra þeim til furstadæmanna. Þar eiga þeir að hjálpa við varnir landsins gegn árásum frá Íran.
Sameinuðu arabísku furstadæmin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Hernaður Tengdar fréttir Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Tillögur Írana um forsendur fyrir viðræðum um varanlegan frið eru sagðar fela í sér afléttingu hafnbanns Bandaríkjanna á Hormuz-sundi, afléttingu allra refsiagerða gegn Íran og tryggingu fyrir því að ekki verði gerðar frekari árásir á landið. Þá segir Wall Street Journal tillögurnar fela í sér skammvinnra bann gegn auðgun úrans en Bandaríkjamenn höfðu lagt til og útflutning aðeins hluta birgða Írana af auðguðu úrani. 11. maí 2026 07:01 „Gjörsamlega óásættanlegt“ Svör bárust frá írönskum stjórnvöldum í dag við friðartillögum Bandaríkjamanna. Lítið er vitað um innihald þeirra en Donald Trump Bandaríkjaforseti segir þau vera óboðleg. 10. maí 2026 21:29 Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Íranski herinn sakar Bandaríkjaher um að hafa brotið gegn samkomulaginu um vopnahlé. Bandaríkjamenn segjast hafa skotið gegn Írönum í sjálfsvörn. 7. maí 2026 21:59 Franskur floti á leið til Persaflóa Frakkar eru að senda flugmóðurskipið Charles de Gaulle og fylgiskip þess í átt að Hormússundi. Flotanum var siglt gegnum Súesskurðinn í gær og er honum ætlað að koma að því að tryggja siglingar um sundið á nýjan leik. Forseti Frakklands segir þó að flotinn eigi alls ekki að koma að átökum á svæðinu. 7. maí 2026 09:14 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira
Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Tillögur Írana um forsendur fyrir viðræðum um varanlegan frið eru sagðar fela í sér afléttingu hafnbanns Bandaríkjanna á Hormuz-sundi, afléttingu allra refsiagerða gegn Íran og tryggingu fyrir því að ekki verði gerðar frekari árásir á landið. Þá segir Wall Street Journal tillögurnar fela í sér skammvinnra bann gegn auðgun úrans en Bandaríkjamenn höfðu lagt til og útflutning aðeins hluta birgða Írana af auðguðu úrani. 11. maí 2026 07:01
„Gjörsamlega óásættanlegt“ Svör bárust frá írönskum stjórnvöldum í dag við friðartillögum Bandaríkjamanna. Lítið er vitað um innihald þeirra en Donald Trump Bandaríkjaforseti segir þau vera óboðleg. 10. maí 2026 21:29
Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Íranski herinn sakar Bandaríkjaher um að hafa brotið gegn samkomulaginu um vopnahlé. Bandaríkjamenn segjast hafa skotið gegn Írönum í sjálfsvörn. 7. maí 2026 21:59
Franskur floti á leið til Persaflóa Frakkar eru að senda flugmóðurskipið Charles de Gaulle og fylgiskip þess í átt að Hormússundi. Flotanum var siglt gegnum Súesskurðinn í gær og er honum ætlað að koma að því að tryggja siglingar um sundið á nýjan leik. Forseti Frakklands segir þó að flotinn eigi alls ekki að koma að átökum á svæðinu. 7. maí 2026 09:14