Upp­gjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri til­raun

Hjörvar Ólafsson skrifar
Lovísa Thompson skoraði sex mörk í þessum leik. 
Lovísa Thompson skoraði sex mörk í þessum leik.  Vísir/Ernir

Valur tryggði sér Íslndsmeistaratititilinn í handbolta kvenna með 30-26 sigri sínum gegn ÍBV í fjórða leik liðanna í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld.

Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi en Valur fór betur af stað en góður lokakafli færði Eyjaliðinu eins marks forskot, 16-15, í hálfleik. 

Valur náði hins vegar 5-0 spretti í upphafi seinni hálfleiks og náði undirtökunum í leiknum. Um miðjan seinni hálfleik skoraði Valur ekki í um það sjö mínútur og ÍBV minnkaði muninn í eitt mark, 24-23, þegar tíu mínútur voru eftir. 

Undir lokin voru Valur aftur á móti sterkari á svellinu og ÍBV náði ekki að snúa taflinu sér í vil og knýja fram oddaleik. 

Valur er þar af leiðandi Ísladsmeistari fjórða árið í röð og í 21. skipti í sögunni. Anton Rúnarsson stýrði Valsliðinu til sigurs í deild og bikar og skilaði Íslandsmeistaratitli á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn hjá liðinu. 

Atvik leiksins

Það var frábær kafli Valsliðsins á fyrstu mínútum seinni hálfleiksins sem lagði grunninn að þessum sigri. Þar varði Hafdis Renötudóttir vel á bakvið sterka vörn Vals og leikmenn gestanna fengu auðveld mörk úr hraðaupphlaupum og seinni bylgju. 

Stjörnur og skúrkar

Eftir að hafa ekki komist á blað í síðasta leik fann Lovísa Thompson fjölina hjá Val í þessum leik og skoraði sex mörk og var markahæst ásamt Ásdísi Þóru Ágústsdóttur. 

Elísa Elíasdóttir kom næst með fimm mörk en hún var sömuleiðis öflug í hjarta varnarinnar hjá Val. Hafdís varði svo 11 skot þar af tvö vítaköst. Valsvörnin var svo öll að standa sig í stykkinu að þessu sinni. 

Sandra Erlingsdóttir dró vagninn í sóknarleik ÍBV og skoraði 12 mörk og Birna Berg Haraldsdóttir skilaði sjö mörkum á töfluna. Ólöf Maren Bjarnadóttir gerði sitt til þess að halda ÍBV inni í leiknum en hún varði 13 skot. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, höfðu einkar góð tök á þessum leik og sáu til þess að það voru handboltaleg gæði sem voru í fyrirrúmi þegar allt var undir. Frammistaða dómaraparsins skilar þeim átta í einkunn. 

Stemming og umgjörð

Það var pakkað í húsinu og stórkostleg stemming. Eyjamenn gerðu sitt til þess að styðja sitt lið til sigurs. Valsmenn voru með nokkuð stóran hóp sem lagði á sig langt ferðalag til þess að fagna Íslandsmeistaratitlinum. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira