„Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þær eru búnar að missa rosalega mikið,“ segir Helena Sverrisdóttir um lið Vals sem í kvöld byrjar nýja leiktíð í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Sérfræðingar Körfuboltakvölds óttast dimman vetur á Hlíðarenda. Körfubolti 30.9.2026 12:46
Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Ágúst Jóhannsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta, kannast ekki við fregnir af krísufundi hjá liði hans í aðdraganda stórsigurs á Mors-Thy frá Danmörku í Evrópudeildinni í gær. Handbolti 30.9.2026 08:53
„Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ „Ég held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld. Þetta er frábært handboltalið, spilar frábæran handbolta og er mjög rútínerað. Að vinna svona lið með ellefu mörkum er ekkert grín,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, eftir sigur á heimavelli í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í Evrópudeildinni. Danska liðið Mors-Thy lá í valnum í kvöld, en um er að ræða lið sem endaði í fjórða sæti á síðasta tímabili í dönsku úrvalsdeildinni. Lokatölur 39-28 fyrir Val. Handbolti 29.9.2026 21:50
Mattías Kjeld valdi KR Mattías Kjeld hefur skrifað undir þriggja ára samning við Bestu deildar lið KR og gengur í raðir félagsins frá Gróttu eftir að hafa heillað í Lengjudeildinni á nýafstöðnu tímabili. Íslenski boltinn 25. september 2026 11:09
Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Gareth Owen mun ekki starfa lengur sem tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar Vals. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag. Íslenski boltinn 23. september 2026 16:03
Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Nóg var skorað er fjórir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Alls voru mörkin 18 talsins. Íslenski boltinn 21. september 2026 13:31
Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga Haukar unnu í kvöld Val í lokaleik 3. umferðar Olís-deildarinnar. Lokatölur á Ásvöllum 28-24 í leik sem var afar jafn í fyrri hálfleik, en heimakonur sterkari í þeim síðari. Handbolti 20. september 2026 17:15
Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum ÍBV og Valur gerðu 1-1 jafntefli á Hásteinsvelli í dag þar sem Eyjamenn sáu gríðarlega dýrmæt stig renna sér úr greipum á lokasekúndunum. Íslenski boltinn 20. september 2026 15:17
33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba Hinn ungi Gunnar Róbertsson hefur skorað 33 mörk í síðustu tveimur leikjum Vals í Olís-deildinni. Gegn Fram í þarsíðustu umferð gerði hann 17 mörk í sjö marka tapi og í síðustu umferð skoraði hann 16 mörk í öruggum sigri gegn HK. Handbolti 20. september 2026 10:17
„Skorti yfirvegun og gæði á hólminum“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, sagði sitt lið hafa skort yfirvegun og gæði þegar binda átti endahnút á sóknir liðsins þegar liðið laut í lægra haldi gegn Þór/KA í dag. Fótbolti 19. september 2026 19:12
Uppgjörið: Valur - Þór/KA 0-1 | Margrét tryggði Þór/KA dýrmæt stig á Hlíðarenda Þór/KA lagði Val að velli með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við í fallbaráttuslag í 19. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á N1-vellinum á Hlíðarenda í dag. Íslenski boltinn 19. september 2026 17:54
„Hversu mikil pressa var á honum?“ Framherjinn Dagur Orri Garðarsson spilar líklega ekki mikið lengur hér á landi þó að ekkert hafi orðið af því að hann yrði seldur frá Val til Slóveníu í síðustu viku. Sérfræðingar Stúkunnar segja hann verðskulda að komast út í atvinnumennsku. Íslenski boltinn 17. september 2026 16:31
Valur bætti vörnina úr síðasta leik Miklar bætingar voru í vörn Vals þegar liðið vann HK í Olís-deild karla í kvöld. Leikurinn endaði með öruggum 37-28 sigri í Kópavoginum. Handbolti 16. september 2026 20:09
Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Tómas Orri Róbertsson skoraði sannkallað draumamark í dýrmætum sigri FH gegn KA í gær. KR, Valur og Stjarnan fögnuðu einnig sigri. Öll mörkin úr Bestu deildinni má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 14. september 2026 11:02
Valur rétti af skelfilega byrjun Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Vals í handbolta kvenna fengu skell í fyrstu umferð Olís deildarinnar þegar liðið tapaði fyrir Selfossi. Liðið tók á móti ÍBV í annarri umferð deildarinnar og náði í kærkominn sigur. Handbolti 13. september 2026 19:41
Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Dagur Orri Garðarson, einn af markaskorurum Vals í dag í 4-1 sigri gegn Þór Akureyri í Bestu deildinni veit ekki hvort leikurinn hafi verið hans síðasti fyrir félagið. Dagur er orðaður við brottför til MSK Zilina í Slóvakíu. Íslenski boltinn 13. september 2026 16:29
Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara VValsarar sigruðu Þór sannfærandi á N1-vellinum í dag í fyrstu umferð Bestu deildarinnar eftir að deildinni var skipt í efri- og neðri hluta. Staðan var jöfn í hálfleik 1-1 en kröftugur síðari hálfleikur hjá heimamönnum skóp sigurinn. Íslenski boltinn 13. september 2026 16:02
MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Slóvakíska félagið MSK Zilina er að ganga frá kaupum á Degi Orra Garðarssyni, leikmanni Vals. Íslenski boltinn 12. september 2026 14:56
Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram lagði Val í ótrúlegum leik, 47-40, í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Fram deilir toppsætinu með KA sem lagði Víking. Handbolti 11. september 2026 21:06
Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Norska knattspyrnufélagið Molde hefur nú tryggt sér tvær af efnilegustu knattspyrnukonum landsins. Hin 17 ára Fanney Lísa Jóhannesdóttir kemur til félagsins frá Stjörnunni og hin 18 ára Sóley Edda Ingadóttir frá Val. Fótbolti 10. september 2026 17:00
Fer frá Hlíðarenda til Molde Unglingalandsliðskonan Sóley Edda Ingadóttir er á förum til norska úrvalsdeildarfélagsins Molde frá knattspyrnuliði Vals, eftir tveggja ára dvöl að Hlíðarenda. Fótbolti 7. september 2026 13:04
Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Það er gífurleg spenna í 18. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta, síðustu umferðinni fyrir skiptingu deildarinnar, sem lýkur í kvöld. Mörkin úr leikjum helgarinnar má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 7. september 2026 09:34
„Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ „Mjög mikilvæg. Við erum í rosalegri baráttu og höfum trú á okkar verkefni,“ sagði Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, um stigin þrjú sem liðið sótti með 4-1 útisigri gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í dag. Íslenski boltinn 6. september 2026 20:47
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Valur vann frábæran 4-1 útisigur á Grindavík/Njarðvík í 18. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag. Sigurinn skýtur Val af botninum og raunar af fallsvæðinu. Íslenski boltinn 6. september 2026 18:20