Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson og Hákon Skúlason skrifa 14. maí 2026 14:11 Ylja er skaðaminnkandi neyslurými á vegum Rauða krossins í Reykjavík þar sem fólk með alvarlegan fíknivanda getur fengið öruggara umhverfi, heilbrigðisaðstoð, hreinan búnað og félagsþjónustu. Markmiðið er að koma í veg fyrir dauðsföll, ofskömmtun, sýkingar og annan alvarlegan skaða. Í haust mun Ylja missa húsnæðið sitt í Borgartúni, þar sem nýjar byggingar eiga að rísa á svæðinu. Þá mun samfélagið standa frammi fyrir mjög alvarlegri spurningu: Hvað ætlum við að gera við þessa þjónustu sem bókstaflega bjargar mannslífum? Vandinn snýst ekki um að starfsemi Ylju skorti lagaheimild eða starfsleyfi. Ylja hefur nú þegar ótímabundið rekstrarleyfi frá embætti landlæknis og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gaf út starfsleyfi árið 2024 til tólf ára. Óvissan snýst fyrst og fremst um húsnæði og staðsetningu. Í stefnu Viðreisnar er lögð áhersla á stuðning við hugmyndafræðina um “húsnæði fyrst” og skaðaminnkun til að þjóna fólki með flóknar þjónustuþarfir. Vandinn hverfur ekki Ylja er ekki hefðbundið úrræði og þess vegna er ekki hægt að flytja starfsemina í hvaða húsnæði sem er. Staðsetningin þarf að vera aðgengileg fólkinu sem þjónustan er ætluð. Hún má ekki vera staðsett við jaðar borgarinnar þar sem skjólstæðingar komast illa að. Auk þess er mikilvægt að ná breiðri sátt um staðsetninguna við nærumhverfið. Frá því að Ylja hóf starfsemi hefur dregið verulega úr neyslu fíkniefna í bílastæðakjöllurum, almenningssalernum, húsasundum og öðrum almenningsrýmum. Áður hélt fólk til í bílastæðahúsum allan sólarhringinn þar sem neysla fór fram við mjög hættulegar og ómannúðlegar aðstæður. Það hefur breyst mikið vegna þess að fólk hefur nú öruggari stað til að leita á. Ef Ylja lokar hverfur vandinn ekki. Fólkið í neyslu hverfur ekki. Neyslan hverfur ekki. Það sem gerist er að neyslan færist aftur út í samfélagið. Mikilvægur hluti af stærra öryggisneti Reynslan úr neyðarskýlum Reykjavíkurborgar sýnir einnig skýrt að þegar skaðaminnkandi úrræði eru til staðar verður auðveldara að ná til fólks sem glímir við alvarlegan vímuefnavanda og félagslega einangrun. Starfsfólk neyðarskýla sér daglega afleiðingar þess þegar fólk fær ekki viðeigandi stuðning, öruggt skjól eða aðgang að heilbrigðis- og félagsþjónustu. Án slíkra úrræða eykst álag á neyðarskýli, heilbrigðisþjónustu og lögreglu á sama tíma og fólk verður berskjaldaðra gagnvart ofbeldi, veikindum og heimilisleysi. Ylja er því ekki einangrað verkefni heldur mikilvægur hluti af stærra öryggisneti fyrir fólk í mestri áhættu. Starfsemi Ylju léttir því á álagi á bráðamóttöku, heilbrigðiskerfinu, lögreglu og almenningsrýmum borgarinnar. Alþjóðlegar rannsóknir á skaðaminnkandi neyslurýmum styðja einnig þessa reynslu. Í yfirferðarrannsókn sem birt var árið 2017 um starfsemi neyslurýma í Kanada kom fram að slík úrræði draga úr dauðsföllum vegna ofskömmtunar, minnka neyslu í almenningsrýmum og auðvelda fólki að tengjast heilbrigðis- og félagsþjónustu. Rannsóknin bendir jafnframt á að neyslurými geti dregið úr samfélagslegum skaða án þess að auka glæpatíðni eða neyslu í nærumhverfi þeirra (Kerr o.fl. 2017). Nú þurfa ríkið og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu að stíga fram og vinna saman að varanlegri lausn og finna framtíðarhúsnæði fyrir þjónustu sem verður áfram nauðsynleg hvort sem okkur líkar betur eða verr. Veljum ábyrgð, mannúð og raunverulegar lausnir Spurningin er ekki hvort fólk með alvarlegan vímuefnavanda sé til staðar í samfélaginu. Spurningin er hvort við ætlum að mæta því af ábyrgð, mannúð og skynsemi eða ýta vandanum frá okkur. Í þessum kosningum leggur Viðreisn í Reykjavík áherslu á raunverulegar lausnir í málefnum heimilislausra, fólks með fíknivanda og geðrænar áskoranir. Lausnir sem byggja á ábyrgð, mannúð, skaðaminnkun og virkri aðstoð í stað þess að ýta vandanum einfaldlega annað eða fela hann frá almenningi. Við getum valið að horfa undan eða við getum valið ábyrgð, mannúð og raunverulegar lausnir. Viðreisn velur seinni kostinn. Bjartur Hrafn Jóhannsson skipar 15. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík, er starfsmaður í neyðarskýli og situr í stjórn Viðreisnar í Reykjavík. Hákon Skúlason skipar 11. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík, er framkvæmdastjóri og gjaldkeri Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun