Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar 24. október 2026 17:30 Enn einu sinni er menntakerfið komið í hringiðu pólitískra deilna. Nú snýst umræðan um nýjan einkunnakvarða, hvort hann sé til bóta og hvort ráðherra hafi sjálfur skilið breytingarnar. Á meðan deilt er um hvernig við eigum að mæla námsárangur sitja kennarar og nemendur áfram uppi með sömu áskoranirnar. Hvenær ætlum við að hætta að rífast um hvernig við mælum vandann og fara að leysa hann? Við höfum vitað í áratugi hvað þarf að bæta. Of mörg íslensk börn ná ekki nauðsynlegri grunnfærni í lestri og stærðfræði. Kennarar glíma við mikið álag, aðgangur að sérfræðiþjónustu er misjafn og skortur á fjölbreyttum námsgögnum gerir þeim erfiðara fyrir að mæta ólíkum þörfum nemenda. Í um þrjá áratugi hafa skýrslur, úttektir og starfshópar bent á veikleika í umgjörð skólastarfsins og lagt fram tillögur að úrbótum. Samt virðist okkur ganga betur að endurskoða kerfin sem meta árangurinn en að tryggja aðstæðurnar sem þarf til að bæta hann. Mælingar skila litlu ef við getum ekki brugðist við Gott námsmat er mikilvægt. Það hjálpar kennurum að greina hvar nemendur standa og hvaða þætti þeir þurfa að styrkja. En upplýsingarnar eru aðeins gagnlegar ef við nýtum þær og getum brugðist við þeim. Það er lítið gagn í því að greina að barn eigi í erfiðleikum með lestur ef kennarinn hefur hvorki tíma né viðeigandi námsgögn til að veita því þá þjálfun sem það þarf. Án fjölbreyttra námsgagna, betri starfsaðstæðna kennara og aðgengilegrar sérfræðiþjónustu verður erfitt að snúa við neikvæðri þróun í námsárangri íslenskra barna. Við getum ekki ætlast til þess að kennarar sinni sífellt fjölbreyttari þörfum nemenda og bregðist við niðurstöðum námsmats án þess að tryggja þeim nauðsynleg verkfæri og svigrúm. Þrjátíu ára vanfjármögnun verður ekki leyst með einni fjárveitingu Staða námsgagna er skýrt dæmi um hversu lengi nauðsynlegar úrbætur hafa setið á hakanum. Samkvæmt skýrslu Þróunarsjóðs námsgagna frá maí 2026 er raunvirði fjármögnunar námsgagna á hvern nemanda aðeins um 30% af því sem það var árið 1991. Það er því fagnaðarefni að stjórnvöld hafi tryggt 380 milljóna króna aukningu til námsgagna. En eftir áratuga vanfjármögnun skiptir miklu hvernig fjármununum verður varið. Nýtt kjarnanámsefni kemur ekki í stað fjölbreytni Í drögum að nýrri aðgerðaráætlun menntastefnu er meðal annars lögð áhersla á heildstætt kjarnanámsefni í stærðfræði, nýtt lestrarefni, námsefni í náttúrugreinum og stafræna námsgagnaveitu. Þetta eru jákvæð skref. En nýtt kjarnanámsefni kemur ekki í stað fjölbreytni. Börn læra á ólíkan hátt og þurfa mismikinn stuðning. Eitt námsefni, hversu vandað sem það er, getur ekki mætt öllum þeim þörfum. Kennarar þurfa fjölbreytt námsgögn, sérhæft stuðningsefni og tíma til að nýta þessi verkfæri í stað þess að verja stórum hluta undirbúningstímans í að útbúa þau sjálfir. Börnin okkar geta ekki beðið í önnur þrjátíu ár Í drögum að nýrri aðgerðaráætlun er sett það markmið að 80% barna sem ekki ná grunnhæfni samkvæmt Matsferli fái viðeigandi stuðning innan átta vikna. Það er mikilvægt markmið. En það eitt að greina vandann fyrr tryggir ekki að hægt sé að leysa hann. Hefur kennarinn tíma til að grípa inn í? Hefur hann aðgang að námsefni sem hentar barninu? Er sérfræðiþjónusta tiltæk þegar hennar er þörf? Markmiðum stjórnvalda verða að fylgja raunveruleg úrræði. Annars erum við aðeins að skrásetja vandann af meiri nákvæmni. Við höfum breytt námskrám, námsmati og viðmiðum aftur og aftur. Sumar breytingar hafa verið nauðsynlegar og aðrar til bóta. En þær hafa ekki leyst þann vanda sem kennarar hafa bent á árum saman. Vilji stjórnvöld sjá umbyltingu í námsárangri þurfa þau að forgangsraða fjölbreyttum námsgögnum, bættum starfsaðstæðum kennara og aðgengi að sérfræðiþjónustu. Ekki aðeins í stefnum og aðgerðaráætlunum, heldur í fjárveitingum og raunverulegum breytingum á skólastarfi. Við höfum ekki efni á að bíða eftir enn einni kynslóð af niðurstöðum sem staðfesta það sem við vitum nú þegar. Börnin okkar þurfa ekki fleiri pólitískar deilur um stefnur og einkunnakvarða. Þau þurfa menntakerfi sem veitir kennurum raunverulegar forsendur til að bæta námsárangur þeirra. Höfundur er formaður Þróunarsjóðs námsgagna Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar