Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir og Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifa 24. október 2026 17:03 Þingsályktunartillaga um brúun umönnunarbilsins er tækifæri til að tryggja ungum fjölskyldum öryggi Ungt fólk á Íslandi er ítrekað að fá þau skilaboð að þau eigi að eignast fleiri börn. Við eigum að stofna fjölskyldur, byggja upp samfélagið og taka þátt í atvinnulífinu. En þegar kemur að því að láta þetta fara saman blasir við veruleiki sem ætti ekki að vera til staðar í nútímasamfélagi: að loknu fæðingarorlofi tekur við óvissa. Fær barnið pláss á leikskóla? Hvenær? Hvað á ég að gera til þess að brúa bilið? Umönnunarbilið er ekki einkamál einstakra fjölskyldna. Það er kerfisvandi sem hefur áhrif á lífskjör, atvinnuþátttöku og jafnrétti. Þegar samfelldur stuðningur við barnafjölskyldur er ekki tryggður er foreldrum ætlað að leysa vandann sjálfum. Þetta hefur orðið til þess að barneignir eru munaðarvara, ekki sjálfsögð framvinda lífsins. Og síðan er spurt hvers vegna ungt fólk fresti barneignum eða eignist færri börn. Möguleikar foreldra til að brúa bilið eru ólíkir. Ekki allir foreldrar geta unnið heiman frá sér, breytt vöktum eða treyst á aðstandendur til að annast barnið á vinnutíma. Sá sem hefur ekki svigrúm til að vera launalaus mánuðum saman stendur frammi fyrir töluvert öðrum veruleika en sá sem getur keypt sér lausn. Umönnunarbilið er því líka stéttarmál. Frá óvissu til réttinda Fyrir liggur þingsályktunartillaga um lögfestingu leikskólastigsins og brúun umönnunarbilsins. Stjórn ASÍ-UNG styður tillöguna og hvetur Alþingi til að samþykkja hana. Tillagan byggir á niðurstöðum aðgerðarhóps um brúun umönnunarbilsins sem skilaði skýrslu í desember 2025. Í hópnum sátu fulltrúar ráðuneyta, Sambands íslenskra sveitarfélaga, ASÍ, BHM, BSRB, Kennarasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Vinnan sjálf á rætur í yfirlýsingu stjórnvalda og sveitarfélaga í tengslum við kjarasamninga árið 2024. Tillagan er mikilvægt skref í rétta átt en hún má ekki verða enn eitt plaggið sem safnar ryki í skúffum stjórnsýslunnar. Nú þarf að klára verkefnið. Leikskólinn er talinn vera fyrsta leikskólastigið á Íslandi en samt er ekki tryggður almennur, einstaklingsbundinn réttur barna til leikskólavistar frá ákveðnum aldri. Við teljum sjálfsagt að börn komist inn í grunnskóla við á 6 aldursári og við teljum sjálfsagt að börn hafi rétt á framhaldsskólamenntun, en fyrsta skólastigið byggir þó enn á getu og fjárhag sveitarfélaga hverju sinni. Það teljum við vera tímaskekkju. Börn eiga aldrei að vera aukaatriði í þessari umræðu. Leikskólinn hefur sjálfstætt gildi sem vettvangur leiks, náms og félagslegra tengsla. Réttur barna til leikskólavistar og möguleikar foreldra til þess að komast aftur út á atvinnumarkaðinn eiga ekki að ráðast af póstnúmerinu sem þú búa í, og réttur barns til að njóta starfsins á ekki að ráðast af fjárhag foreldra eða hversu auðvelt þau eiga með að útvega aðra umönnun. Foreldrar eiga sömuleiðis ekki að þurfa að skipuleggja barneignir eftir inntökudagatali leikskóla. Þar sem inntaka barna fer oft fram að hausti getur munað mörgum mánuðum á bið barna eftir því hvenær árs þau fæðast. Fæðingarmánuður barns á ekki að ráða því hversu lengi fjölskyldan þarf að komast af með skertar tekjur. Kerfisvandi verður að tekjumissi Verkalýðshreyfingin hefur lengi bent á að leikskólakerfið sé ekki aðeins menntamál heldur einnig stórt vinnumarkaðsmál. Fyrir þúsundir fjölskyldna er leikskólinn forsenda þess að foreldrar geti unnið, stundað nám eða byggt upp starfsferil sinn. Þegar pláss vantar eða opnunartími stenst ekki þarfir vinnumarkaðarins lendir kostnaðurinn á fjölskyldum. Það er staðreynd að byrðin af umönnunarbilinu lendir ekki jafnt á foreldrum. Þegar leikskólapláss eru af skornum skammti eru það gjarnan mæður sem fresta endurkomu á vinnumarkað, lækka starfshlutfall sitt eða taka launalaust leyfi til að brúa bilið. Þannig verður til óleystur kerfisvandi tekjumissis og skertra starfstækifæra kvenna. Brúun umönnunarbilsins er því líka brýnt kvenréttindamál. Við megum ekki gleyma því hvers vegna leikskólarnir voru stofnaðir til þess að byrja með, en það var til þess að gefa konum jafnt færi og körlum á vinnumarkaði og er ein mikilvægasta jafnréttisumbót síðustu áratuga. Leikskólarnir voru byggðir upp í gegnum áratugalanga baráttu fyrir betri lífskjörum, auknum réttindum og sterkari velferðarkerfum. Þeir eru hluti af þeirri samfélagssýn að börn eigi rétt á góðu uppeldi og menntun, samhliða raunverulegu frelsi foreldra til þess að taka þátt á vinnumarkaði. Áhyggjur af stöðu leikskólanna eru ekki bara áhyggjur af þjónustu við börn heldur áhyggjur af framtíð velferðarsamfélagsins sjálfs. Lausnin má ekki lenda á fjölskyldunum ASÍ hefur ítrekað bent á að lausnin við mönnunarvanda leikskólanna geti ekki verið sú að færa kostnaðinn yfir á foreldra eða stytta dvöl barna. Slíkar aðgerðir leysa ekki undirliggjandi vanda. Til þess þarf fjárfestingu, skýra stefnu og aukna virðingu fyrir mikilvægu starfi leikskólafólks. Ef við ætlum að tryggja öllum börnum rétt til leikskólavistar þá þurfum við jafnframt að tryggja að þar sé nægt starfsfólk, að starfsaðstæður séu góðar og að fólk sjái sér framtíð í faginu. Góðar starfsaðstæður í leikskólum og örugg þjónusta við barnafjölskyldur verða að fara saman. Foreldrar og starfsfólk eiga ekki að þurfa að bera kostnaðinn af því að stjórnsýslan tryggi ekki nægar forsendur fyrir starfseminni. Lausnin verður að felast í því að styrkja leikskólana svo þeir geti sinnt bæði menntunarhlutverki sínu og þörfum fjölskyldna. Samfélagið verður að standa við sitt Ungt fólk þarf að geta treyst því að samfélagið standi við sinn hluta samningsins. Við stöndum þegar frammi fyrir háum húsnæðis- og framfærslukostnaði. Við það má ekki bætast óvissa um hvort við getum snúið aftur til vinnu þegar fæðingarorlofi lýkur. Að eignast barn á ekki að þýða að þurfa að velja á milli þess að sinna umönnun þess og að geta séð fjölskyldunni farboða. Þingsályktunartillagan er mikilvægt skref í átt að því öryggi sem barnafjölskyldur þurfa. Stjórn ASÍ-UNG hvetur Alþingi til að samþykkja hana og stjórnvöld til að fylgja henni eftir með lagasetningu, fjármagni og uppbyggingu. Leikskóli fyrir öll börn að loknu fæðingarorlofi verður að verða tryggður réttur í framkvæmd. Ungt fólk á ekki að þurfa að velja á milli þess að eignast börn og hafa efni á að ala þau upp. Höfundar eru Svanfríður Bergvinsdóttir, formaður ASÍ-UNG, og Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, varaformaður ASÍ-UNG. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fæðingarorlof Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar