Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar 14. maí 2026 17:42 Fyrir þá sem hafa engan áhuga á að lesa langloku um fjárhag Rangárþings eystra spara ég ykkur sporin; hann er í góðu lagi og rúmlega það. Sveitarfélagið hefur verið einstaklega vel rekið undir forystu D-listans á líðandi kjörtímabili. Þau ykkar sem viljið fá nánari upplýsingar um góða stöðu sveitarfélagsins getið þið haldið áfram að lesa. Ársreikningur sveitarfélagsins Rangárþings eystra fyrir árið 2025 var samþykktur samhljóða af sveitarstjórn þann 7. maí 2026. Ársreikningurinn gefur skýra mynd af því hversu vel sveitarfélagið stendur og hversu heilbrigður reksturinn hefur verið á líðandi kjörtímabili. Óhætt er að segja að fjárhagsstaða sveitarfélagsins hafi sjaldan, eða aldrei, verið eins góð frá stofnun þess. Þó hefur aldrei verið fjárfest fyrir eins háar upphæðir í innviðum og á líðandi kjörtímabili. Það gefur góð fyrirheit um nauðsynlega uppbyggingu innviða næstu árin enda er fjárhagsleg staða sveitarfélagsins sterk og byggir á traustum grunni. Heildarvelta sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta 2025 nemur 3.925 m.kr. en var í upphafi kjörtímabils 2.940 m.kr. og hefur því vaxið um milljarð á kjörtímabilinu. Íbúum í sveitarfélaginu heldur áfram að fjölga ár frá ári og eru í dag 2.289 talsins. Í upphafi kjörtímabilsins voru íbúar 1.892 og hefur þeim því fjölgað um 397 á síðustu fjórum árum sem samsvarar um 21% fjölgun á kjörtímabilinu. Það eitt og sér er skýrt merki um að hér sé eftirsóknarvert að búa. Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 476 m.kr., langt umfram áætlun sem gerði ráð fyrir 104 m.kr. Rekstrarniðurstaða samantekinna reikningsskila sveitarfélagsins er jákvæð um 553 m.kr. og er afkoman þannig 423 m.kr. betri en endurskoðuð áætlun gerði ráð fyrir. Í rekstri sveitarfélaga er mikilvægt að skila afgangi af rekstri A-hluta til að tryggja fjárhagslega sjálfbærni. Það hefur verið eitt af fjárhagslegum markmiðum núverandi meirihluta að skila A-hluta með afgangi og gaman að segja frá því að það verið niðurstaðan allt. Það eitt og sér er skýrt merki um stöðugan og heilbrigðan rekstur sveitarfélagsins á líðandi kjörtímabili. Aðalmarkmiðið í rekstri sveitarfélags á þó ekki að vera það að hámarka hagnað heldur er aðalatriðið að tryggja öfluga þjónustu til íbúa og hóflega skattheimtu. Á líðandi kjörtímabili hefur D-listinn staðið fyrir lækkunum á álagningarprósentu fasteignagjalda, fráveitu- og vatnsgjalda á sama tíma og hækkunum á gjaldskrám er snúa að barnafjölskyldum hefur verið stillt í hóf. Í ljósi góðs reksturs sveitarfélagsins undanfarin ár er nú gullið tækifæri til þess að gera enn betur í lækkun skatta og gjalda í þágu íbúa sveitarfélagsins. Við munum meðal annars halda áfram að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts fyrir íbúðarhúsnæði og munum einnig lækka álagningarprósentu á atvinnuhúsnæði. Við munum hefja vinnu við að innleiða gjaldfrjálsan leikskóla, hækka frístundastyrkinn og svo mætti lengi áfram telja. Lykillinn að því að þetta skuli vera hægt á næsta kjörtímabili er ábyrgur og stöðugur rekstur á því sem nú er að líða. Það fer ekki fram hjá neinum að umtalsverð uppbygging hefur átt sér stað í sveitarfélaginu á yfirstandandi kjörtímabili. Heilu hverfin hafa byggst upp á talsverðum hraða og ekkert lát virðist vera á. Víða má sjá bæði íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði í byggingu, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli. Mikilvægt er að sveitarfélagið haldi í við þessa þróun þannig að innviðir standist þær kröfur sem vöxtur sveitarfélagsins gerir. Til þess þarf reksturinn að skila nægu handbæru fé til að standa undir afborgunum lána, uppbyggingu innviða og nýjum fjárfestingum. Það gerir reksturinn svo sannarlega í dag og ekkert því til fyrirstöðu að halda áfram í öflugri uppbyggingu innviða á vegum sveitarfélagsins. Eitt af stærri verkefnunum sem nú þegar hefur verið ákveðið að ráðast í á næsta kjörtímabili er viðbygging við Hvolsskóla. Sveitarfélagið er einkar vel í stakk búið að ráðast í slíka framkvæmd á næsta kjörtímabili. Í upphaflegri áætlun fyrir árið 2025 var gert ráð fyrir lántöku vegna fjárfestinga en niðurstaða ársins var sú að ekki gerðist þörf á því. Sú niðurstaða var einnig raunin árið 2024 og því talsvert langt um liðið frá því að sveitarfélagið sló lán.. Því hefur gefist gott svigrúm á kjörtímabilinu til þess að greiða niður skuldir og var skuldahlutfall A og B hluta í árslok 2025 63,4% og skuldaviðmiðið 15,4% sem er langt undir 150% hámarki reglugerðar um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Á þessari stuttu yfirferð minni um fjárhagsstöðu sveitarfélagsins má glöggt sjá að hér hefur verið vandað til verka og fráfarandi meirihluti skilar af sér einkar góðu búi. Þar hafa skipt sköpum allir þeir góðu starfsmenn sem Rangárþing eystra hefur í liði sínu, þeir eiga einn stærsta hlutinn í því að fjárhagsstaðan er eins góð og raun ber vitni. Þannig viljum við hafa hlutina áfram, fjárhagsstaðan sé sterk, álögur sanngjarnar og að íbúar fái úrvals þjónustu frá sveitarfélaginu sínu. Með því að setja X við D á kjördag veist þú, kjósandi góður, nákvæmlega að hverju þú gengur. Okkar markmið er skýrt, höldum áfram að reka sveitarfélagið okkar af ábyrgð og festu, hér er best að búa og við viljum að íbúarnir okkar njóti þess í hvívetna. Höfundur er sveitarstjóri og oddviti D-listans í Rangárþingi eystra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar