Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar 15. maí 2026 09:21 Um fátt annað er talað í þessari kosningabaráttu í borginni en Borgarlínu og þéttingu byggðar. Fjölmargir skipulagsfræðingar benda á að það gangi ekki að byggja bara endalaust ný hverfi í allar áttir og búast við því að þar geti allir verið á bíl, án þess að allar götur teppist.Þó að akreinum væri bætt við að þá væri ekki hægt að hafa undan aukinni umferð. Til að leysa þetta þurfi að byggja þéttar, byggja saman atvinnu- og íbúðarhúsnæði og stórbæta almenningssamgöngur með sérrýmum fyrir langa strætóa sem verða kallaðir Borgarlínan. Og þetta er alveg satt. En af hverju eru borgarbúar þá svona mótfallnir þessu? Vinstri flokkarnir tala varla um annað en Borgarlínu og þéttingu, að það þurfi bara að halda settri stefnu. Og nýi miðillinn með kaldhæðnislega nafnið Gímaldið virðist vera í keppni um að skýra þetta út fyrir heimskum borgarbúum sem virðast ekki ná þessu. Núna nýlega með viðtali við Gísla Martein sem reyndi enn á ný að útskýra þetta fyrir okkur. Við þetta bætist draumsýnin að ef við byggjum bara nógu þétt að þá fáum við aftur þjónustu inn í hverfin. En enginn fylgismaður núverandi stefnu hefur dokað við og spurt sig hvers vegna stór meirihluti borgarbúa er svona ósáttur við þetta. Stærsta ástæðan er sú að borgin hefur farið kolvitlaust að í öllum skipulagsmálum og hvert klúðrið hefur rakið annað. Í stað þess að bæta almenningssamgöngur er bara Borgarlínu lofað á næsta áratug, eða þeim þarnæsta og til að fá fólk strax í strætó er verktökum bara bannað að hafa nógu mörg bílastæði. Það er heldur ekki nóg að byggja þétt, það þarf að byggja svo þétt að íbúar sjái ekki til sólar fyrir nágrönum sínum. Og ekki bara þar sem verslun, þjónusta og almenningssamgöngur eru fyrir hendi, heldur á hvað græna bletti sem er í úthverfunum. Áfram þarf fólk bíla því það nær ekki í strætó úr vinnu að sækja börnin á leikskóla á réttum tíma. Þjónustan í mörgum þessum þéttu hverfum er lítil sem engin. Sum hverfi hafa ekki einu sinni strætó, hvað þá verslun. Vandamálið er ekki að forsendur fyrir þéttari byggð og Borgarlínu séu rangar. Vandamálið er margsönnuð vanhæfni meirihlutaflokka í borgarstjórn í skipulagsmálum. Borgarbúar vilja ekki svona rosalega þétt hverfi, þeir vilja sjá til sólar og þeir vilja stæði. Þetta sýna kannanir. Þegar og ef þjónustan verður betri þá verða örugglega fleiri til í að sleppa bílnum, en þjónustan batnar ekki með því einu að gera fólki erfitt að eiga bíl.Bætið þjónustuna, þéttið hóflega og leyfið fleiri stæði allavega í úthverfum. Byggið borgarlínu. Endilega, því fyrr því betra. En hlustið á athugasemdir og farið eftir þeim svo verkefnið sé ekki dauðadæmt frá byrjun. Gísli Marteinn, Samfylkingin og fylgihnettir hennar hafa rétt fyrir sér. Það gengur ekki endalaust að bæta við nýjum hverfum, án þess að stórbæta almenningssamgöngur og þjónustu í hverfunum og byggja þéttar en við gerðum fyrir 20 árum. En á meðan þau sjá ekki að leiðin þeirra til að laga borgarskipulagið er vörðuð hverju klúðrinu á eftir öðru er ekki hægt að treysta þeim fyrir verkefninu. Brennt barn forðast eldinn og vinstri maður reynir að gera upp við sig hvaða hægriflokkur sé minnst slæmur. Höfundur er borgarbúi, verkfræðingur og vinstri maður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar