„Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 15. maí 2026 11:11 Arnar stendur með Hafdísi og segir bakslag hafa orðið í réttindabaráttu minnihlutahópa. Þörf sé á samfélagslegu átaki. Samsett/Vísir Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, gagnrýnir harðlega framkomu stuðningssveitar ÍBV í garð landsliðsmarkvarðarins Hafdísar Renötudóttur í leik liðanna á dögunum. Hann kallar eftir viðbrögðum vegna bakslags í réttindabaráttu minnihlutahópa hérlendis.
Hafdís tjáði sig stuttlega á samfélagsmiðlum líkt og greint var frá á samfélagsmiðlum í morgun. Hafdís varð fyrir fordómum í fyrri leik ÍBV og Vals í Vestmannaeyjum í úrslitaeinvíginu en í síðari leik liðanna í Eyjum í því einvígi vann Valur sigur og tryggði liðinu Íslandsmeistaratitilinn fjórða árið í röð. Viðkomandi áhorfandi sem kallaði að Hafdísi var settur í bann og ÍBV sektað vegna málsins. „Hinsegin fólk verður fyrir aðkasti á hverjum degi og ég er hvorki sú fyrsta né síðasta sem upplifir það. Þetta úrslitaeinvígi braut mig. Ég mætti samt. Íslandsmeistarar 2026,“ skrifar Hafdís á Instagram. Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari Íslands, tjáði sig um málið á Facebook-síðu sinni í morgun. Hann sagði það vera „svartan blett á úrslitakeppninni“ og að taka þyrfti á samfélagsátaki að halda. „Bakslag hafi orðið í baráttu minnihlutahópa“ sem sé „því miður vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi þökk sé ákveðnum pólitískum öflum og lýðskrumurum“ segir Arnar meðal annars. „Við þurfum að þora að taka slaginn gegn þessum öflum sem ala á ótta og tryggja að raddir samkenndar, jafnréttis og frelsis nái í gegn,“ segir hann enn fremur en færsluna í heild má sjá að neðan. Færsla Arnars: Til hamingju Valsstelpur með vel verðskuldaðan titil. Þessi ömurlega framkoma stuðningsmannasveitar ÍBV sem veittist að leikmönnum Hauka og Vals með niðrandi hætti, líkamssmánun og ósmekklegum fordómum í garð samkynhneigðra er svartur blettur á annars flottri úrslitakeppni. Þessi hegðun er óásættanleg. Hér þarf að bregðast við. Við sem samfélag höfum á ákveðin hátt brugðist. Eftir áratuga árangur í jafnréttismálum hefur orðið bakslag í baráttu minnihlutahópa. Hatursorðræða, þar sem ráðist er að einstaklingi eða hópi á grundvelli kynþáttar, litarhafts, trúar, kyns eða kynhneigðar er því miður vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi þökk sé ákveðnum pólitískum öflum og lýðskrumurum. Við þurfum að þora að taka slaginn gegn þessum öflum sem ala á ótta og tryggja að raddir samkenndar, jafnréttis og frelsis nái í gegn. Því þrátt fyrir bakslag er Ísland ennþá fallegt og frjálslynt samfélag. Gerum okkar besta til að halda því þannig. Út með hatrið – inn með ástina
Olís-deild kvenna Valur ÍBV Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira