Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar 15. maí 2026 13:11 Allir í Múlaþingi eiga rétt á öflugu, fjölbreyttu og aðgengilegu íþrótta- og tómstundastarfi, óháð aldri eða búsetu. Íþróttir og tómstundir eru ekki aðeins mikilvægur vettvangur fyrir hreyfingu og heilsu, heldur líka fyrir félagsleg tengsl og sterkara samfélag. Þess vegna þarf að tryggja að sem flestir hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku. Uppbygging til framtíðar Til að það verði að veruleika þarf markvissa uppbyggingu á aðstöðu íþróttafélaga og aukið samstarf milli félaga, sveitarfélags og annarra sem koma að starfinu. Við þurfum að horfa til framtíðar og byggja upp aðstöðu sem mætir þörfum iðkenda í dag en líka þeirra sem koma á eftir. Hvort sem um er að ræða æfingaaðstöðu inni og úti, búnað eða aðstöðu fyrir nýjar greinar, þá þarf metnaðurinn að vera til staðar. Stöndum með íþróttahreyfingunni Við hjá Austurlistanum og Viðreisn styðjum heilshugar við uppbyggingu íþrótta- og tómstundaaðstöðu í Múlaþingi. Við viljum standa með íþróttafélögum og sjálfboðaliðum sem leggja ómetanlegt starf af mörkum fyrir samfélagið okkar á hverjum degi. Sterkt íþróttastarf verður ekki til af sjálfu sér, heldur byggir það á góðri aðstöðu, öflugum stuðningi og skýrri framtíðarsýn. Jöfn tækifæri fyrir öll börn Við teljum jafnframt mikilvægt að öll börn og ungmenni hafi jafnan aðgang að íþrótta- og tómstundastarfi, óháð aðstæðum. Þátttaka í slíku starfi getur skipt sköpum fyrir líðan, félagsfærni og framtíðarmöguleika. Um leið viljum við skapa fleiri tækifæri fyrir fullorðna og eldri íbúa til hreyfingar og þátttöku, því öflugt íþrótta- og tómstundastarf á að vera fyrir alla. Múlaþing á að vera sveitarfélag þar sem fjölbreytt íþróttalíf fær að vaxa og dafna. Með aukinni samvinnu, sterkari innviðum, betri samgöngum og skýrri forgangsröðun getum við skapað samfélag þar sem fleiri fá tækifæri til að taka þátt, njóta sín og efla heilsu sína. Íþróttir fyrir alla í Múlaþingi. Höfundur skipar 8. sæti á lista Austurlistans/Viðreisnar í Múlaþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Allir í Múlaþingi eiga rétt á öflugu, fjölbreyttu og aðgengilegu íþrótta- og tómstundastarfi, óháð aldri eða búsetu. Íþróttir og tómstundir eru ekki aðeins mikilvægur vettvangur fyrir hreyfingu og heilsu, heldur líka fyrir félagsleg tengsl og sterkara samfélag. Þess vegna þarf að tryggja að sem flestir hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku. Uppbygging til framtíðar Til að það verði að veruleika þarf markvissa uppbyggingu á aðstöðu íþróttafélaga og aukið samstarf milli félaga, sveitarfélags og annarra sem koma að starfinu. Við þurfum að horfa til framtíðar og byggja upp aðstöðu sem mætir þörfum iðkenda í dag en líka þeirra sem koma á eftir. Hvort sem um er að ræða æfingaaðstöðu inni og úti, búnað eða aðstöðu fyrir nýjar greinar, þá þarf metnaðurinn að vera til staðar. Stöndum með íþróttahreyfingunni Við hjá Austurlistanum og Viðreisn styðjum heilshugar við uppbyggingu íþrótta- og tómstundaaðstöðu í Múlaþingi. Við viljum standa með íþróttafélögum og sjálfboðaliðum sem leggja ómetanlegt starf af mörkum fyrir samfélagið okkar á hverjum degi. Sterkt íþróttastarf verður ekki til af sjálfu sér, heldur byggir það á góðri aðstöðu, öflugum stuðningi og skýrri framtíðarsýn. Jöfn tækifæri fyrir öll börn Við teljum jafnframt mikilvægt að öll börn og ungmenni hafi jafnan aðgang að íþrótta- og tómstundastarfi, óháð aðstæðum. Þátttaka í slíku starfi getur skipt sköpum fyrir líðan, félagsfærni og framtíðarmöguleika. Um leið viljum við skapa fleiri tækifæri fyrir fullorðna og eldri íbúa til hreyfingar og þátttöku, því öflugt íþrótta- og tómstundastarf á að vera fyrir alla. Múlaþing á að vera sveitarfélag þar sem fjölbreytt íþróttalíf fær að vaxa og dafna. Með aukinni samvinnu, sterkari innviðum, betri samgöngum og skýrri forgangsröðun getum við skapað samfélag þar sem fleiri fá tækifæri til að taka þátt, njóta sín og efla heilsu sína. Íþróttir fyrir alla í Múlaþingi. Höfundur skipar 8. sæti á lista Austurlistans/Viðreisnar í Múlaþingi.
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar