„Auðvitað, við erum langbesti flokkurinn“ Smári Jökull Jónsson skrifar 15. maí 2026 19:55 Það var líf og fjör í Dalskóla í dag þegar nemendur fylgdust með kynningu framboða. Þau Mikael Hrafn og Rebekka Ósk voru á meðal frambjóðenda. Vísir/Anton Brink Það er ekki bara kosið á morgun því nemendur í Dalskóla héldu kosningar í dag þar sem kosið var um stefnuskrár flokka sem nemendur höfðu stofnað. Meðal stefnumála var að hafa frítt í strætó auk kröfu um að nemendum væri kennt á lífið sem tekur við að skólagöngu lokinni.
Nemendur í 10. bekk hafa undanfarið unnið verkefni tengt kosningum. Í dag var komið að nemendum að kynna sín stefnumál en hluti af verkefninu var að stofna sinn eigin stjórnmálaflokk. Þegar fréttastofa leit við í Dalskóla fyrr í dag stóðu yfir kosningar og að sjálfsögðu það sem er ómissandi á kjördag, sjálft kosningakaffið. „Markmiðið er að kynna fyrir þeim stjórnmálin, formið og lýðræðið, við fjöllum svolítið um lýðræðið. Setja þetta upp í þetta form og það er gaman að það eru kosningar á morgun. Þau eru að setja sig í þessar stellingar og tala við kjósendur sem eru þá 8. og 9. bekkur,“ segir Jóna Hildur Bjarnadóttir deildarstjóri unglingastigs í Dalskóla. Jóna Hildur Bjarnadóttir deildarstjóri unglingastigs í Dalskóla.Vísir/Anton Brink Nemendur þurftu að útbúa kynningarefni um sín framboð, framleiða myndbönd og búa til reikninga á samfélagsmiðlum með það að markmiði að ná til sem flestra kjósenda. Hvað var það sem þið voruð að berjast fyrir? „Við viljum fá frítt í strætó fyrir alla námsmenn. Við viljum að krökkum í grunnskóla sé kennt hvernig lífið er eftir skóla, með skatta og alls konar þannig,“ sagði Rebekka Ósk Elmarsdóttir nemandi í 10. bekk. Mikael Hrafn Loftsson og Rebekka Ósk Elmarsdóttir nemendur í 10. bekk í Dalskóla.Vísir/Anton Brink Hún hafði þá nýlega lokið við að kynna verkefni sitt fyrir samnemendum sínum í hátíðarsal skólans. Hvað þarf maður að gera til að ná í atkvæðin? „Maður þarf að koma með góð loforð,“ segir Mikael Hrafn Loftsson sem einnig er í 10. bekk. „Maður þarf að sýna sig almennilega og líka bara vera góð manneskja, jákvæður og að fólk geti séð þig sem leiðtoga.“ Myndi líða vel að ná fram breytingum Rebekka og Mikael viðurkenna að þau hafi ekki mikið fylgst með umræðum fyrir sveitastjórnarkosningar á morgun en gætu hugsað sér framtíð í stjórnmálum. „Kannski þegar ég verð eldri, þá er ég kominn á það stig að mig langar að gera breytingar. Þannig að mér líst alveg á stjórnmál,“ segir Mikael. Hér má sjá eitt framboðið kynna sín stefnumál.Vísir/Anton Brink „Ef ég væri í pólitík þá myndi mér líða svo vel ef ég væri að breyta einhverju, ef ég væri að breyta einhverju sem mér fyndist skipta máli,“ bætir Rebekka við. Mikael er ekki í vafa um að hans flokkur fái góða kosningu. „Auðvitað, við erum langbesti flokkurinn.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Börn og uppeldi Grunnskólar Reykjavík Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira