Körfubolti

Bjarni Guð­mann fram­lengir í Garða­bæ

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Bjarni Guðmann Jónsson verður áfram bláklæddur næstu tvö árin. 
Bjarni Guðmann Jónsson verður áfram bláklæddur næstu tvö árin.  Vísir/Guðmundur

Bjarni Guðmann Jónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Stjörnunnar.

Bjarni Guðmann er uppalinn hjá Skallagrími í Borgarnesi en gekk til liðs við Stjörnuna fyrir tveimur árum eftir að hafa spilað með Fort Hays State University í bandaríska háskólaboltanum.

Bjarni var hluti af Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar árið 2025 en liðið datt út í undanúrslitum úrslitakeppninnar gegn Tindastóli á þessu tímabili. Eftirminnileg er frammistaða Bjarna í öðrum leik liðanna, þegar hann skoraði 20 stig í sigri Stjörnunnar sem komst 2-0 yfir.

Á nýafstöðnu tímabili hjá Stjörnunni skoraði Bjarni 6.9 stig, greip 4.1 frákast og gaf 0.9 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Óvíst er hver þjálfari Stjörnunnar verður á næsta tímabili eftir að Baldur Þór Ragnarsson ákvað að segja starfi sínu lausu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×