Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. maí 2026 10:23 Ahmadinejad var harður andstæðingur Ísrael og Bandaríkjanna en lofaði Trump í viðtali árið 2019 og sagði hann „mann aðgerða“. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hugðust koma fyrrverandi forseta Íran, Mahmoud Ahmadinejad, aftur til valda þegar þeir hófu árásir á landið. Ísraelsmenn lögðu á ráðin um árás á heimili Ahmadinejad í Tehran, þar sem hann sætti stofufangelsi, til að frelsa forsetann fyrrverandi. Ahmadinejad, sem særðist í árásinni, ku hafa vitað af áætluninni en snúist hugur þegar hann var frjáls. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn.
Frá þessu greinir New York Times og hefur eftir heimildarmönnum innan bandaríska stjórnkerfisins og samstarfsmanni Ahmadinejad. Skömmu eftir að Ísraelsmenn höfðu ráðið leiðtogann Ali Khamenei af dögum sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti opinberlega að það væri best ef einhver „innan Íran“ tæki við stjórnartaumunum. Að Ahmadinejad hafi orðið fyrir valinu kemur hins vegar afar á óvart en hann var harður andstæðingur bæði Bandaríkjanna og Ísrael og kallaði ítrekað eftir því að Ísraelsríki yrði „þurrkað út af kortinu“. Ahmadinejad var einnig einarður stuðningsmaður kjarnorkuáætlunar Írana og óvæginn gagnvart mótmælendum en var á sama tíma horn í síðu klerkastjórnarinnar og undir stöðugu eftirliti. Samkvæmt New York Times er ekki vitað hvernig það æxlaðist að Ahmadinejad samþykkti að taka þátt í aðgerðum Bandaríkjanna og Ísrael. Miðillinn segir að þegar árásirnar hófust hefðu embættismenn talað um að einhver innan stjórkerfisins í Íran væri reiðubúinn til að vinna með Bandaríkjamönnum. Fyrirætlanir um að koma Ahmadinejad til valda eru til marks um að eitt af markmiðum aðgerðanna var að stuðla að stjórnarskiptum í landinu. Hér má finna ítarlega umfjöllun New York Times um málið.
Íran Bandaríkin Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Ekið á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Sjá meira