Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 22. maí 2026 19:08 Oddvitar í Hafnarfirði ræða saman, nýtt meirihutasamstarf er í smíðum í Mosfellsbæ og Hildur vill Einar í meirihluta hvernig sem fer samkvæmt heimildum fréttastofu. Vísir Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Viðræður eru hafnar í Mosfellsbæ og í Hafnarfirði er einnig rætt við Samfylkinguna. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hitti oddvita Viðreisnar, Samfylkingar og Miðflokks á Kjarvalsstöðum í dag.
Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni hitti oddvita Miðflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar á Kjarvalsstöðum í dag í sínu hvoru lagi og ræddi áfram um fleti á meirihlutaviðræðum. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur komið fram að Hildur vilji að Framsóknarflokkurinn verði með hvernig sem nýr meirihluti lítur út. Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar virðist því eiga að vera hluti af nýjum meirihluta í borginni hvernig sem fer. Möguleikarnir nú séu því að Sjálfstæðisflokkur myndi meirihluta með Miðflokki og Framsóknarflokki eða Viðreisn og Framsókn. Það virðast hins vegar vera afar skiptar skoðanir innan Sjálfstæðisflokksins hvaða leið sé vænlegust. Þá á Hildur samkvæmt heimildum fréttastofu að hafa greint frá því á fundi í dag að hún taki ákvörðun um framhaldið um helgina. Ætla má að Hildur Björnsdóttir liggi undir feldi með stóru ákvörðunina varðandi meirihlutaviðræður í borginni næstu daga. Von er á ákvörðun um helgina samkvæmt heimildum fréttastofu. Vísir Bjartsýni í meirihlutaviðræðum í Mosfellsbæ Það var meira að gerast í Mosfellsbæ í dag en Sjálfstæðisflokkurinn í bænum tilkynnti að hann hefði boðið Viðreisn í meirihlutaviðræður. Sjálfstæðisflokkurinn er með fimm menn kjörna eftir sveitarstjórnarkosningarnar og bætti við sig einum manni en Viðreisn fékk einn mann kjörinn. Það fór vel á með fólki á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í bænum. „Við vorum að hittast á fyrsta fundi og það gekk mjög vel. Við munum finna farsæla lausn á því hver fari í bæjarstjórnarstólinn,“ segir Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ. Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ og Gylfi Þór Þorsteinsson oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ. Vísir/Lýður Gylfi Þór Þorsteinsson oddviti Viðreisnar í bænum var einnig bjartsýnn eftir fyrsta fundinn í dag. „Þetta er gott fólk. Það var gott fólk á öllum listum hér í Mosó. Við þekkjumst vel og þetta verður ekki vandamál. Við viljum gera góðan bæ enn betri,“ sagði Gylfi. Samfylking útilokar ekki viðræður við Framsókn Í Hafnarfirði hittust oddvitar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar á fundi í morgun til að ræða möguleika á samstarfi. En Sjálfstæðisflokkurinn sleit formlegum viðræðum við Framsóknarflokkinn í gær að sögn vegna trúnaðarbrests því oddvitinn hefði líka verið að þreifa fyrir sér um samstarf við aðra flokka. Hildur Rós Guðbjargardóttir oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði.Vísir/Lýður „Við fórum út af þessum fundi í morgun með gott veður en það er ekkert lengra komið. Næsti fundur er ekki alveg ákveðinn en verður líklega núna um hvítasunnuhelgina,“ sagði Hildur Rós Guðbjargardóttir oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði sem tók við sætinu eftir að Guðmundur Árni Stefánsson ákvað að segja af sér því flokkurinn tapaði tveimur sveitarstjórnarfulltrúum í kosningunum. Samfylking og Viðreisn eru flokkarnir sem Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar var líka í viðræðum við. Oddvitar þeirra lýstu vantrausti á hann í fjölmiðlum í gær vegna málsins. Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar sagði um misskilning að ræða í gær en flokkurinn bætti við sig þriðja manninum í Hafnarfirði um helgina. Aðspurð um hvort Hildur sé tilbúin til að ræða aftur við Valdimar Víðisson oddvita Framsóknar slitni upp úr viðræðum við Sjálfstæðisflokk og Viðreisn svarar hún: „Sannarlega voru komnar þreifingar og við vorum komin langt með okkar samtal við Valdimar og Viðreisn. Við útilokum ekki neitt. Það þarf að mynda meirihluta í Hafnarfirði og við viljum ekki útiloka neitt. En það er ekki fyrsti kostur.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mosfellsbær Hafnarfjörður Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Borgarstjórn Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Sjá meira