„Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Eiður Þór Árnason skrifar 24. maí 2026 22:25 Frá aðgerðum slökkviliðs á vettvangi í dag. Þorleifur Geirsson Gróðureldur logaði í klettunum milli Menntaskóla Borgarfjarðar og Bónuss í Borgarnesi á sjötta tímanum í dag. Grunað er að hann hafi kviknað af mannavöldum. Eldur logaði á um 400 fermetra svæði og tók innan við hálftíma að slökkva glæðurnar. „
Við fengum þarna góða aðstoð frá lögreglunni sem náði að hefta mestu útbreiðsluna og voru á undan okkur á staðinn. Þetta fór bara vel en mig grunar að það hafi verið eitthvað fikt þarna sem varð til þess að það kviknaði þarna í,“ segir Heiðar Örn Jónsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð, í samtali við fréttastofu. Hann á von á því að lögregla rannsaki málið í kjölfarið. „Það voru einhver vitni eða einhverjir sem létu vita að þarna hefðu einhverjir verið í fjörunni skömmu áður en eldurinn kviknar. Og svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér, þannig að það eiginlega liggur í augum uppi.“ Þorleifur Geirsson náði myndefni af starfi slökkviliðs á vettvangi í dag. Hann segir eldinn hafa logað fyrir austan gömlu torfhúsin í hlíðinni og að gríðarlegur reykur hafi myndast vegna eldsins. Klippa: Gróðureldur í Borgarnesi Fólk beðið um að fara varlega Tilkynning barst um eldinn klukkan 17:39 í dag, að sögn Heiðars. Gróður sé svo þurr á svæðinu að þetta séu kjöraðstæður fyrir gróðurelda. „Það eru þurrkatímar og þótt það rigni aðeins þá er hættan enn þá til staðar. Við þurfum að fá dálítið góða vætu til þess að róa okkur aðeins. Þannig að við biðjum fólk um að vera ekkert að fikta við eld og fara varlega með neistagjafa í náttúrunni.“ „Slökkviliðsmenn eru þeir einu sem bíða spenntir eftir rigningu á þessum tíma,“ bætir Heiðar við. Slökkviliðið sé á tánum þessa dagana og til taks ef eitthvað gerist. „Við vonum bara það besta og biðlum til fólks að fara varlega og vera ekkert að einhverju svona fikti.“
Borgarbyggð Slökkvilið Gróðureldar Gróðureldar á Íslandi Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira