Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Samúel Karl Ólason skrifar 26. maí 2026 16:29 Rússar gerðu umfangsmiklar árásir á Kænugarð og nærliggjandi byggðir um helgina. Þeir hóta nú frekari árásum en rússenskir hermenn hafa náð takmörkuðum árangri á víglínunni í ÚKraínu um nokkuð skeið. AP/Evgeniy Maloletka Leiðtogar Evrópusambandsins hafa kallað sendiherra Rússlands í Brussel á teppið eftir að ríkisstjórn Rússlands sagði evrópskum erindrekum að yfirgefa Kænugarð. Annars yrðu þeir sprengdir í loft upp.
Talskona utanríkisráðuneytis ESB segir að hótanir í garð erlendra borgara og erindreka sem ætlað sé að fá þá til að yfirgefa Kænugarð séu óásættanleg stigmögnun. Þess vegna hafi sendiherrann verið kallaður á teppið. Hún segir einnig að þeim skilaboðum hafi verið komið áleiðis til hans að Rússar hætti árásum á borgaraleg skotmörk og hefji raunverulegar friðarviðræður, sem geti byrjað á almennu vopnahléi. Þetta fylgir á hæla þess að í gær sendi utanríkisráðuneyti Rússlands út yfirlýsingu um að vegna árása Úkraínumanna á óbreytta borgara í Rússlandi, myndu Rússar gera árásir á hergagnaframleiðendur í Kænugarði. Erlendir erindrekar ættu að koma sér frá borginni. Í kjölfarið hringdi Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í Marco Rubio, kollega sinn í Bandaríkjunum, og sagði að Rússar myndu hefja kerfisbundnar árásir á Kænugarð. Flestir erlendir erindrekar í Kænugarði, og þar á meðal kínverskir, segjast ekki ætla að yfirgefa Kænugarð. Sendiherra ESB í Kænugarði sagði Rússa vilja skapa ótta og óreiðu og einangra Úkraínumenn. Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands og núverandi aðstoðarformaður þjóðaröryggisráðs Rússlands, sagði í dag að Evrópusambandið ætti greinlega nóg af erindrekum og það þyrfti að fækka þeim. The EU has said it will maintain its diplomatic presence in Kiev unchanged, despite Russia's warnings. Well, apparently they've got diplomats to spare and need to trim the headcount.— Dmitry Medvedev (@MedvedevRussiaE) May 26, 2026 Þjóðverjar kölluðu sendiherra Rússlands þar í landi einnig á teppið. Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Þýskalands segir að árásir Rússa á sjúkrahús, skóla og þýsk sjónvarpsfyrirtæki, auk ógnana gegn þýskum erindrekum, séu hótanir, hryðjuverk og stigmögnun. WATCH: High-quality footage of Russian Kh-101 cruise missiles and Shahed-2 drones striking Kyiv, alongside Ukrainian air defense responses. pic.twitter.com/jzjhjazyYz— Clash Report (@clashreport) May 24, 2026 Úkraínumenn segja að Rússar hafi skotið rúmlega áttatíu eldflaugum að Kænugarði og nærliggjandi bæjum og borgum um helgina, auk fjölda sjálfsprengidróna. Meðal annars notuðust þeir við Oreshnik-skotflaug sem hönnuð er til að bera kjarnorkuvopn. Hún fer hátt til himins og fellur á gífurlegum hraða til jarðar. Á leiðinni dreifir hún sprengjum frá sér. Án kjarnorkuvopna er skotflaugin tiltölulega ónákvæm. Sjá einnig: Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Politico segir erindreka frá rúmlega sjötíu ríkjum hafa í gær farið með utanríkisráðherra Úkraínu og skaðað byggingar sem urðu fyrir árásum um helgina. Þessar árásir segja Rússar gerðar sem svar við árás Úkraínumanna á heimavist í Starobilsk, hernumdu svæði í Lúhansk-héraði. Rússar segja 21 á aldrinum átján til 21. hafa fallið í árásinni. Úkraínumenn segjast hafa gert árás á hernaðarlegt skotmark.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Evrópusambandið Hernaður Tengdar fréttir Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi segist þakklátur Íslendingum og finnst hann meðal vina. Hann segir Ísland og Úkraínu eiga mikla sameiginlega hagsmuni og að diplómasía sé gífurlega mikilvæg fyrir þjóð í stríði og að hún geti hjálpað þar sem vopnin dugi ekki til. 23. maí 2026 07:01 Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Ráðamenn í Evrópu eru með til skoðunar að skipa sérstakan erindreka gagnvart Rússlandi sem koma á að friðarviðræðum um Úkraínu. Þessi erindreki myndi þá eiga í viðræðum við ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Fyrst þurfa Evrópumenn þó að komast að samkomulagi um hvað erindrekinn á að segja. 22. maí 2026 22:22 Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Rússar hafa neyðst til draga úr framleiðslu eða jafnvel stöðva hana alveg í mörgum af helstu olíuvinnslum ríkisins. Það er vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði eins og vinnslur, dælustöðvar og geymslutanka en vegna þeirra hafa Rússar bannað alfarið útflutning á unnu eldsneyti í það minnsta út júlí. 20. maí 2026 22:45 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Fleiri fréttir Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Sjá meira
Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi segist þakklátur Íslendingum og finnst hann meðal vina. Hann segir Ísland og Úkraínu eiga mikla sameiginlega hagsmuni og að diplómasía sé gífurlega mikilvæg fyrir þjóð í stríði og að hún geti hjálpað þar sem vopnin dugi ekki til. 23. maí 2026 07:01
Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Ráðamenn í Evrópu eru með til skoðunar að skipa sérstakan erindreka gagnvart Rússlandi sem koma á að friðarviðræðum um Úkraínu. Þessi erindreki myndi þá eiga í viðræðum við ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Fyrst þurfa Evrópumenn þó að komast að samkomulagi um hvað erindrekinn á að segja. 22. maí 2026 22:22
Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Rússar hafa neyðst til draga úr framleiðslu eða jafnvel stöðva hana alveg í mörgum af helstu olíuvinnslum ríkisins. Það er vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði eins og vinnslur, dælustöðvar og geymslutanka en vegna þeirra hafa Rússar bannað alfarið útflutning á unnu eldsneyti í það minnsta út júlí. 20. maí 2026 22:45