Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Oddur Ævar Gunnarsson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 27. maí 2026 13:59 Oddvitarnir þrír kynntu meirihlutann í Viðey í morgun. Vísir/Vilhelm Oddvitar nýs meirihluta í Reykjavík hafa þegar átt samtal við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þeir segja ætlunina ekki að tefja framkvæmdir heldur þurfi að endurskoða tillögur um veggjöld og flýta Miklubrautargöngum.
Þetta er meðal þess sem rætt var við oddvitana í viðtali við fréttastofu að loknum blaðamannafundi í Viðey í morgun. Líkt og fram hefur komið kynnti Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri þar nýjan meirihluta með þeim Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar og Einari Þorsteinssyni oddvita Framsóknar. Bæði höfðu þau síðarnefndu sett spurningamerki við endurskoðun samgöngusáttmálans í kosningabaráttunni og viðrað áhyggjur af því að það myndi tefja framkvæmdir. Styrkur að hafa flokk í fjármálaráðuneytinu Björg segir að Viðreisn hafi náð góðri lendingu í stórum málum í meirihlutasamstarfi. Hún segir eðlilegt að nýir borgarfulltrúar í forystu setjist niður með sveitarfélögum og ríkisstjórninni. „Ég er nú aðeins byrjuð að tala við Daða Má í fjármálaráðuneytinu varðandi samgöngusáttmálann. Nú bara koma fersk augu að því en við höldum alltaf á lofti þeim markmiðum að við höldum áfram, af því við þurfum að halda á lofti því að búa til sterka valkosti fyrir Reykvíkinga í samgöngumálum og það ríki hér frelsi um það, þannig það er alltaf markmið og við teljum okkur vel geta náð saman um það.“ Hildur segir eitt af sínum fyrstu verkum verði að kalla samtali við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmálans. Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið skýr með það að hann væri ekki sáttur við að hér yrðu lögð á veggjöld á höfuðborgarsvæðinu. „Við höfum talað fyrir því að flýta Miklubrautargöngum og leita hagkvæmustu leiða til að ná árangri og tryggja íbúum frelsi og val um fjölbreytta, góða samgöngukosti, þannig við förum inn í þetta samtal með þeim hætti og það verður styrkur fyrir okkur sannarlega að í þessum meirihluta sé flokkur sem jafnframt situr í fjármálaráðuneytinu.“ Segir ekki vilja til að tefja framkvæmdir Rætt og ritað var um það fyrir kosningar að endurskoðun sáttmálans myndi tefja framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu meðal annars vegna Borgarlínu. Einar Þorsteinsson segir að virða þurfi niðurstöður kosninga. „Það var ákall um það að þessi mál yrðu skoðuð. Þeir flokkar sem töluðu fyrir því til dæmis að taka Miklubrautargöng og kanna hvort það sé hægt að gera þau í einkaframkvæmd, taka þau þá úr Samgöngusáttmálanum, þeir fengu mikið fylgi. Þannig okkur ber bara skylda til þess að hlusta á kjósendur og ég hef talað fyrir því að grafa ekki undan skuldbindingu ríkisins varðandi fjárfestingu hér inn á höfuðborgarsvæðið og það er ekki ætlun þessa meirihluta,“ segir Einar. „Ætlunin er að hefja þetta samtal við ríkið eins og borgarstjórinn, verðandi lýsir, að taka þetta samtal og ég heyrði það í þessari kosningabaráttu að það er enginn eiginlega sem hefur áhuga á þessum veggjöldum og ég held að ríkisstjórnin hafi það ekki heldur. Nú þurfum við að setjast aðeins að þessu borði og það mun vonandi leiða til betri niðurstöðu en við höfum í dag. Stóra sýnin er sú að við þurfum að halda áfram að fjárfesta, það verði ekki framkvæmdastopp og að við séum að hlusta á borgarbúa.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Samgöngumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira