Doncic flytur félag til Rómar Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. maí 2026 17:00 Luka Doncic ætlar að færa liðið úr bænum Cremona til höfuðborgar Ítalíu. Allen J. Schaben / Los Angeles Times via Getty Images Luka Doncic hefur fest kaup á eignarhlut í ítalska körfuboltafélaginu Cremona. Liðið spilar í úrvalsdeildinni og mun nú færa sig um set til Rómar.
Slóveninn er leikmaður Los Angeles Lakers í NBA deildinni en spilaði áður í evrópska boltanum. „Mig hefur dreymt um að eiga lið í Evrópu og við ætlum að afreka stórkostlega hluti,“ sagði Doncic við Corriere della Sera. „Körfuboltinn kemur aftur til Rómar,“ skrifaði Doncic í færslu á Instagram. Vert er þó að nefna að Virtus Roma spilar í höfuðborginni, en vissulega í þriðju efstu deild. View this post on Instagram Doncic fer í þetta verkefni með Donnie Nelson, fyrrum yfirmanni sínum hjá Dallas Mavericks. Nelson hefur lengi verið áhugamaður um evrópska körfuboltann og bar ábyrgð á nýliðavali Mavericks þegar Dirk Nowitzki kom til félagsins. „Við viljum endurlífga höfuðborgina. Engin ákvörðun verður tekin án Doncic,“ sagði Nelson. Samkvæmt La Gazzetta dello Sport er búið að finna nýjan þjálfara liðsins, Sasha Djordjevic sem er fyrrum landsliðsþjálfari Serbíu og hefur áður þjálfað Milan og Virtus Bologna í ítölsku deildinni. Talið er að eftir flutninginn til Rómar muni Cremona breyta um nafn og verða hluti af nýju NBA-Evrópudeildinni sem á að hefja göngu sína haustið 2027.
Ítalski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Sjá meira