Handbolti

Dagur Árni aftur heim í KA

Aron Guðmundsson skrifar
Dagur Árni kann vel við sig í gulu treyjunni
Dagur Árni kann vel við sig í gulu treyjunni Mynd:KA

Dagur Árni Heimisson er orðinn leikmaður KA á nýjan leik og skrifar hann undir tveggja ára samning við félagið og mun spila með því í Olís deildinni á næsta tímabili. 

Frá þessu greinir KA í dag en þessi nítján ára gamli leikmaður stoppaði stutt við hjá Val á Hlíðarenda eftir að hafa verið keyptur til félagsins fyrir síðasta tímabil frá KA. 

Dagur Árni þekkir KA inn og út. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið veturinn 2021-22 þá aðeins fimmtán ára gamall og varð fljótt lykilmaður fyrir norðan. 

Leikmaðurinn hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og er sonur Heimis Arnar Árnasonar og Mörthu Hermannsdóttur en bæði hömpuðu þau Íslandsmeistaratitli með KA og KA/Þór.

„Við erum afar stolt af því að fá okkar frábæra Dag aftur heim,“ lætur Jón Heiðar Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar KA hafa eftir sér í tilkynningu frá félaginu. „Það er skýr stefna hjá okkur í KA að byggja okkar öfluga lið á KA kjarna sem keyrir á jákvæðri stemningu. Dagur Árni er einn efnilegasti leikmaður landsins og veit nákvæmlega út á hvað handboltinn fyrir norðan snýst um. Það er alvöru fjölskyldubragur á handboltanum hér í KA og alltaf gott þegar uppaldir leikmenn koma aftur heim og ítrekum við að dyrnar hjá okkur standa ávallt opnar. Það er komin virkilega skemmtileg dýnamík í hópinn hjá okkur og ekki spurning að við ætlum okkur áfram að stíga skref áfram og koma KA aftur í alvöru toppbaráttu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×