Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Lovísa Arnardóttir skrifar 31. maí 2026 17:00 Mynd að koma á kofann. Aðsend Íbúar í Langholtshverfi komu í gær upp nýjum smíðavelli á Kambsvelli. Einn forsprakkanna, Embla Vigfúsdóttir, segir íbúa hafa fengið innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu lokun smíðavallar sem ekki var öryggisvottaður.
Umhverfis- og skipulagssvið gaf enda út tímabundið leyfi og kofavöllurinn í Vesturbæ fær í það minnsta að standa fram á haust. Sjá einnig: Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Embla og Áslaug Dröfn Sigurðardóttir, smiður, tóku sig saman og söfnuðu saman spýtum og aðrir nágrannar komu með skrúfur og verkfæri og svo opnuðu þau smíðavöllinn á Kambsvellinum í Langholtshverfinu í gær. „Ég þekki Símon sem byrjaði með smíðavöllinn í Vesturbæ fyrir nokkrum árum og mig langaði alltaf að gera það sama. Svo urðu krakkarnir svo áhugasamir þegar krakkarnir í Vesturbæ þurftu að berjast fyrir smíðavellinum,“ segir Embla í samtali við fréttastofu. Fjöldi barna kom saman á vellinum í gær til að smíða. Aðsend Hún segir nokkurn fjölda fullorðinna og barna hafa komið saman á Kambsvellinum í gær og hafist handa. Upp séu komnir nokkrir kofar og hægt sé að halda áfram að vinna í þeim í dag og næstu daga. „Áslaug er að vinna hjá Verkstæðinu og er að gera sviðsmyndir fyrir bíó og kvikmyndir, hún kom með allt efnið. Það fellur svo oft eitthvað til í vinnunni hjá henni,“ segir Embla og svo hafi aðrir komið með verkfæri og skrúfur. „Við fórum líka í snúsnú, meira að segja tvísnúsnú, og vorum að kenna krökkunum það,“ segir hún og að eins konar hátíðarstemning hafi myndast á Kambsvellinum í gær. Hún segir völlinn hafa verið auglýstan í hverfishópnum og þau hafi aðeins fengið jákvæð viðbrögð. Þau hafi ekki formlega enn sótt um leyfi en ætli að sækja um sams konar leyfi og smíðavöllurinn fékk í Vesturbæ. „Við ætlum að reyna að hafa þetta áfram, þetta verður vonandi ekki eitthvað bitbein, það er allavega komið fordæmi í Vesturbænum, og það voru bara jákvæð viðbrögð í hverfinu. Það eru margir búnir að sakna þess að geta leyft krökkunum að byggja með opinn efnivið, að þau geti sjálf búið til sinn eigin heim,“ segir Embla en ítrekar þó að þau geri ráð fyrir að það verði alltaf einhver fullorðinn á svæðinu og að skrúfur og verkfæri eigi ekki að skilja eftir. Hún og Áslaug hafi farið við lok dags í gær og hreinsað upp skrúfur og nagla úr spýtunum sem stóðu út. Kofinn að rísa og einn í klippingu. Aðsend „Við kíktum yfir áður en við fórum heim, svo er ég með skrúfukistilinn heima,“ segir hún en einn nágranni hennar kom með heila kistu fulla af skrúfum. Embla er sjálf að skrifa bók um leik barna og segir þetta sérstakt áhugasvið. Leikur barna hafi breyst mikið síðustu árin samhliða komu tækninýjunga. Svo börnin haldi áfram að leika sér verði eitthvað að vera í boði. Leikurinn verði að henta breiðum aldri „Við getum ekki kvartað yfir því að þau séu alltaf inni ef það er ekkert í boði úti,“ segir Embla og að til dæmis séu hefðbundin leiksvæði aðeins hönnuð fyrir börn upp að sjö til átta ára aldri og eftir það hætti mörgum börnum að finnast þau spennandi. „Þá verða þeir svo öruggir fyrir krakka sem eru búnir að fatta, þau geta ekki sótt neitt markmið þar, þau eru búin með hæðina og fá ekki næga áskorun. Krakkar eru alltaf að sækja í að ögra sér, en ef þú getur það ekki, því allt er svo niðurneglt og það er engin áskorun, þá sækirðu hana annars staðar, til dæmis á netinu og getur fengið eitthvað thrill þar,“ segir Embla og bendir á að rannsóknir hafi sýnt að ef börn fái ekki að taka áhættu fyrir átta ára aldur séu þau líklegri til að vilja sækja hana á unglingsaldri. Þetta sé því mikilvægt mál. Hún segir Kambsvöllinn ekki mikið nýttan en stundum komi krakkar í fótbolta á sumrin. Íbúar vonist til þess að smíði vallarins glæði lífi í völlinn. „Þetta er bara sjálfsprottið verkefni íbúa og það virkar eins og það sé mikill meðbyr.“
Börn og uppeldi Reykjavík Umhverfismál Krakkar Deilihagkerfi Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira