Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Freyja Þórisdóttir skrifar 1. júní 2026 21:51 Söngkonan Sabrina Carpenter hefur átt fjölda laga á vinsældarlistum síðustu ára svo sem Please Please Please og Espresso. Getty Bandaríska söngkonan Sabrina Carpenter hefur farið fram á nálgunarbann gegn manni sem hún segir hafa birst við heimili hennar innan við sólarhring eftir að hafa verið handtekinn. Hann hafði reynt að þröngva sér inn um dyr heimilis hennar og þóst þekkja hana.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun miðilsins TMZ um málið en samkvæmt dómskjölum sem þau komust yfir við vinnslu fréttar sinnar er maðurinn hinn þrjátíu og eins árs gamli William Applegate. Lögfræðiteymi söngkonunnar dreif sig fyrir dómara á föstudag og lagði fram beiðni um nálgunarbann en Sabrina heldur því fram að Applegate hafi birst óboðinn við heimili hennar í Los Angeles þann 23. maí eftir að hafa farið ólöglega inn á lóð nágranna hennar til að komast fram hjá og rjúfa öryggisgirðinguna sem ver heimili hennar. Hann er sagður hafa byrjað að reyna af alefli að þröngva sér inn á heimili Sabrinu án nokkurs boðs, leyfis eða samþykkis. Þegar hurðin opnaðist ekki er maðurinn sagður hafa bankað á dyrnar og hringt dyrabjöllunni áður en öryggisvörður Carpenter fjarlægði hann af eigninni. Fékk tímabundið nálgunarbann Söngkonan sagði í yfirlýsingu sinni að það hafi verið „ljóst að hann hafi komið af ásetningi, heimsóknin hafi virkað úthugsuð og hann hafi verið ágengur, sem sé mjög ógnvekjandi“. Þar heldur hún því einnig fram að öryggisverðir hennar hafi talað við hann en hann hafi neitað að hlýða. Sabrina segir að Applegate hafi þóst þekkja hana en hún segist ekki þekkja hann og skrifar Sabrina: „William Applegate er mér algjörlega ókunnugur. Ég hef aldrei hitt hann eða átt í neinum samskiptum við hann. Ég hef enga löngun til að hitta hann eða eiga í samskiptum við hann.“ Sabrina fór fram á og fékk samþykkt tímabundið nálgunarbann sem krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni, systur hennar Söruh og kærasta systur hennar, George. Ákveðið verður síðar í þessum mánuði hvort breyta eigi tímabundna nálgunarbanninu í varanlegt bann.
Tónlist Dómsmál Hollywood Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira